Lögreglan á Suðurlandi lagði hald á tæplega 200 kannabisplöntur, búnað til ræktunar og önnur meint fíkniefni í Reykholti í Bláskógabyggð í gær. Rúnar Steingrímsson lögreglufulltrúi staðfestir þetta. Hann segir ræktunina með þeim umfangsmestu á Suðurlandi síðustu ár. Einn var handtekinn í tengslum við málið.
Lögreglufulltrúinn segir fréttastofu að tilkynning hafi borist um einkennilegar mannaferðir við hús inni í byggð í Reykholti í fyrradag. Lögregla hafi athugað málið og fundið sterka kannabislykt við húsið. Það hafði ekki verið til rannsóknar fyrir.
Í framhaldi af því var farið í aðgerðir og fengin heimild til að fara inn í húsið. Lögregla sat um húsið frá degi tilkynningar og beið eftir að einstaklingur kæmi þangað.
„Tilkynningin kemur þarna á deginum á undan, þannig séð, og það er farið að athuga þetta um kvöldið og fylgst með húsinu um nóttina og fram eftir degi. Þegar það kom þarna aðili í húsið var farið í aðgerðir,“ segir Rúnar.
Lögregla og rannsóknardeild hafi farið á vettvang, ræktunin verið tekin niður og flutningabíll verið fenginn til að flytja kannabisplönturnar og ræktunarbúnaðinn. Efnin verða send til rannsóknar.
„Þetta var tæplega 200 plöntur í mörgum herbergjum í húsinu þannig þetta var slatti.“
Það á eftir að taka skýrslu af sakborningi sem var handtekinn í húsinu í gær. Að sögn Rúnars liggur ekki fyrir hvort maðurinn sé Íslendingur. Spurður um hvort talið sé að ræktunin tengist skipulagðri glæpastarfsemi eða skipulögðum glæpasamtökum segir lögreglufulltrúinn það til rannsóknar.
Rúnar tekur fram að Lögreglan á Suðurlandi fagni öllum ábendingum sem hjálpa við að koma upp um viðlíka mál, líkt og henni barst í fyrradag.