Áfengislagerum netverslana með áfengi fjölgar og starfsemin festir sig í sessi þrátt fyrir að vera á gráu svæði lagalega. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir það afstöðu ráðuneytis síns að netverslun með áfengi sé ólögleg.
ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, skoðar fyrirkomulag áfengissölu hérlendis eftir kvörtun frá Samtökum verslunar og þjónustu um að einkaleyfi ÁTVR samræmist ekki EES-samningnum. Í svari til ESA segir fjármálaráðuneytið skýrt að ÁTVR hafi einkaleyfi til smásölu áfengis innanlands. Einstaklingum sé heimilt að flytja inn áfengi til einkanota en öll smásala þriðja aðila eða milliganga sé bönnuð með lögum.
„Ekki í samræmi við lög“
Inntur eftir því hvort þetta þýði ekki beinlínis að netverslun með áfengi sé ólögleg hér á landi segir Daði Már það vera afstöðu fjármálaráðuneytisins.
„Það hafa verið í gangi mál gegn þessum verslunum og það hefur tekið langan tíma að fá úr þeim skorið. En það er okkar afstaða og studd af niðurstöðu héraðsdóms að þetta sé ekki í samræmi við lög.“
Í dómi sem féll í Héraðsdómi Reykjaness í apríl var eigandi Smáríkisins dæmdur til þess að greiða 100 þúsund króna sekt vegna stakrar sölu sem var talin brot gegn einkaleyfi ÁTVR. Því máli hefur verið áfrýjað til Landsréttar.
Daði Már segir að á meðan því máli sé ekki lokið fyrir dómsstólum verði líklega ekki breytingar á starfsemi fyrirtækjanna. Það sé afstaða fyrirtækjanna sjálfra að þeirra starfsemi rúmist innan heimilda um póstverslun.
„Á meðan ekki hefur komið niðurstaða í dómsmálin þá getum við sagt að það sé ágreiningur uppi um þetta.“
Hann segir óheppilegt hve langan tíma meðferð málsins taki fyrir dómsstólum. „Þetta er í sjálfu sér ekki flókin spurning, þannig að við hefðum viljað að þetta væri afgreitt fyrr,“ segir Daði Már.