Fæðingardeild Heilbrigðisstofnunar Austurlands í Neskaupstað verður lokuð í rúmar fimm vikur í sumar. Lokunin hefur áhrif á um 20 konur sem þurfa að ferðast landshorna á milli til að eiga börn á tímabilinu.
Skurðstofan á sjúkrahúsinu í Neskaupstað verður lokuð frá 8. júlí til 14. ágúst vegna framkvæmda við endurbætur. Á meðan verða ekki gerðar skurðaðgerðir og ekki verður hægt að sinna fæðingarþjónustu. Heilbrigðsstofnun Austurlands vísar skjólstæðingum eftir atvikum til Sjúkrahússins á Akureyri eða Landspítala. Þórarna Gró Friðjónsdóttir starfandi forstjóri HSA segir aldrei æskilegt að skerða þjónustu.
„Við gerum okkur fulla grein fyrir því að þetta veldur skjólstæðingum óþægindum. En á sama tíma eru þessar framkvæmdir nauðsynlegar og bara kominn tími á að það sé farið í þessar endurbætur til að byggja undir þjónustuna til framtíðar.“
Vegna lokunarinnar verða konur sem eiga von á barni á tímabilinu að ferðast út úr fjórðungnum og gjarnan dvelja langdvölum fjarri heimili á meðan beðið er eftir barni.
Þórarna Gró segir stofnunina reyna að koma til móts við þessar konur, ljósmæður séu innan handar og veiti aðstoð við skipulag ferðalaga og dvöl utan fjórðungsins. Um 20 konur í þjónustu heilbrigðisstofnunarinnar eigi von á sér á tímabilinu sem fæðingardeildin verður lokuð.