Franska lúxus-tískuhúsið Vetements fékk strákana til að sýna nýjustu vörurnar á pallinum en merkið er þekkt fyrir vandaðar vörur sem mætti skilgreina sem götu-tísku (e. street fashion).
Britney á strákana með fyrrum eiginmanni sínum, dansaranum Kevin Federline, en foreldrarnir ákváðu að leyfa strákunum að njóta sín án þess að mæta og taka athygli frá þeim. Þeir hafa báðir haldið sig að mestu úr sviðsljósinu undanfarin ár en foreldrar þeirra hafa eldað grátt silfur fyrir augum almennings lengi.
Britney sakaði Kevin Federline meðal annars um stöðugar gaslýsingar eftir að hann gaf út ævisögu í fyrra þar sem hann lýsir barnsmóður sinni sem tifandi tímasprengju. Talsmaður Spears svaraði með því að segja hann reyna að hagnast á stjörnunni nú þegar meðlagsgreiðslurnar berast ekki lengur frá henni.