Óskemmtileg sjón blasti við starfsfólki leikskólans Norðurbergs í Hafnarfirði þegar það mætti til vinnu á mánudagsmorgun. Þar höfðu verið unnin skemmdarverk á leikskólalóðinni, meðal annars með því að rífa upp sumarblóm, skemma listaverk og valda skemmdum á trjám.
Frá þessu greinir Anna Borg Harðardóttir, leikskólastjóri Norðurbergs, í færslu í Facebook hópnum Norðurbærinn minn – íbúar í Norðurbæ í Hafnarfirði.
Hvetur foreldra til að ræða um umgengni
Í færslu sinni hvetur Anna foreldra grunnskólabarna í hverfinu til að ræða við börnin sín um góða umgengni.
Hún segir að slíkt samtal geti skipt miklu máli og bætir við að sambærileg atvik komi því miður nær undantekningarlaust upp þegar sumarleyfi grunnskóla hefst.
Þrátt fyrir skemmdirnar leggur hún áherslu á að börn séu ávallt velkomin á leikskólalóðina, svo lengi sem þau gangi vel um, njóti svæðisins og beri virðingu fyrir því.
„Þau eru alltaf velkomin í leikskólalóðina með þeim formerkjum að ganga vel um og njóta fallegu lóðarinnar,“ skrifar Anna Borg.
