Lögreglan á Norðurlandi vestra handtók um helgina tvo erlenda menn sem grunaðir eru um ítrekaðan þjófnað úr verslunum í umdæminu. Við húsleitir í híbýlum þeirra fannst þýfi og lítið magn af fíkniefnum.
Embætti lögreglustjórans á Norðurlandi vestra fer með rannsókn málsins, að því er segir í tilkynningu lögreglunnar á Facebook.