Það eru ekki bara farsímar sem geta lent í vandræðum með að ná í Neyðarlínuna eftir að slökkt var á 2G og 3G sendum landsins. Frá 2018 hefur verið skylda að allir bílar séu búnir eCall-kerfi sem hringir sjálfvirkt neyðarsímtal við árekstur. Þá eru einnig sumir bílar búnir sérstökum SOS-neyðarhnapp sem hægt er að nota til að hringja handvirkt í Neyðarlínuna.
Það var ekki fyrr en í upphafi árs 2025 að þessir bílar fóru að styðja 4G tækni. Bílar nýskráðir á Íslandi 2018-2024 geta því ekki hringt í Neyðarlínuna eftir að slökkt var á sendunum, um 120.000 ökutæki.
Fleiri en bara ökutæki og farsímar sem nota 2G og 3G
Það eru fleiri sem styðjast við 2G og 3G kerfið. Það eru öryggiskerfi, öryggishlið, sum lækningartæki, neyðarkerfi lyfta og fleira. Hægt var að bregðast við útfösun 2G og 3G víða en það var ekki hægt með ökutæki.
Á þeim bifreiðaverkstæðum sem fréttastofa hafði samband við var óvíst hvort það væri hreinlega hægt að skipta út eCall kerfinu hjá ákveðnum tegundum og ef það væri hægt kostaði það fleiri hundruð þúsunda króna.
Vissu af mögulegum vandræðum
Að sögn Ólafs Aðalsteinssonar hjá Fjarskiptastofu vissu þeir af þessu vandamáli en ekki hefði verið hægt að bregðast við því. Það að slökkva á sendunum hefði verið algjörlega á frumkvæði fjarskiptafélaganna sem eiga og reka kerfið.
Ármann Gestsson, varðstofustjóri hjá Neyðarlínunni, sagði við fréttastofu í mars að þessi sjálfvirku símtöl, hvort sem væri úr bílum, úrum eða símum, væru góð viðbót.
Fleiri fái hjálp sem þarfnast hennar - áður fyrr gat liðið langur tími áður en einhver kom á slysstað sem gat hringt á Neyðarlínuna, nú séu dæmi þess að Neyðarlínan sé búin að fá tilkynningu úr ökutækinu áður en fólkið sjálft í bílnum veit hvað gerðist.