Lögreglan á Suðurlandi lagði hald á töluvert magn af „meintum kannabisplöntum, ræktunarbúnaði og meintum fíkniefnum“ í Reykholti í Bláskógabyggð í gær. Einn aðili var handtekinn og færður til skýrslutöku. Málið er til rannsóknar hjá embættinu.
Samkvæmt upplýsingum fréttastofu stóðu aðgerðir í Reykholti í gær yfir í töluverðan tíma.
Helena Rós Sturludóttir, upplýsingafulltrúi Ríkislögreglustjóra, segir sérsveit ekki hafa komið að aðgerðinni. Þá segir Elín Agnes Eide Kristínardóttir yfirlögregluþjónn á rannsóknarsviði Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu embættið ekki hafa komið að málinu.