Enn er óvíst hvenær ferjan Baldur snýr aftur til Breiðafjarðar. Ferjan var tekin úr siglingu milli Stykkishólms og Brjánslækjar í byrjun mánaðar til að sinna auknu álagi við farþega- og ökutækjaflutninga til Vestmannaeyja. Baldur átti að snúa aftur til Breiðafjarðar 18. júní en það stóðst ekki. Sveitarfélög við Breiðafjörð gagnrýndu ákvörðunina harðlega.
Baldur gegnir hlutverki varaskips fyrir Herjólf þegar Herjólfur er óstarfhæfur eða í slipp. Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi, segir að það sé ekki staðan í þessu tilfelli.
„Í því tilviki sem nú er uppi þá er Herjólfur í siglingum en Baldur tekinn til viðbótar til að mæta auknu álagi farþega- og vöruflutninga milli lands og Eyja. Það er eitthvað sem við sættum okkur ekki við, að Baldur sé tekinn úr siglingum á Breiðafirði til að sinna auknu álagi með þessum hætti milli lands og Eyja,“ segir Jakob í Morgunútvarpinu á Rás 2.
„Við verðum að hafa það skýrt að það sé einhvers konar samgöngurof og í rauninni neyð sem sé uppi þannig að Baldur sé tekinn af siglingum hér á Breiðafirði.“
Síðar hafi komið í ljós að raunveruleg ástæða þess að Baldur var færður til hafi verið varúðarráðstöfun vegna bilunar í Herjólfi.
Upphaflega átti Baldur að þjóna Vestmannaeyjum í tvær vikur, frá 7.-18. júní. Bæjarstjórn Stykkishólms átti fund með stjórnvöldum 18. júní, þar sem 15. júlí var nefnd sem ný viðmiðunardagsetning fyrir endurkomu Baldurs. Nýjustu upplýsingar bendi hins vegar til þess að það verði ekki fyrr en 20.-25. júlí.
„Særún er ekki Baldur“
Ingveldur Eyþórsdóttir er húseigandi í Flatey. Hún segir að þjónustuskerðingin sé mikil. Baldur hefur venjulega tvær viðkomur á dag í Flatey yfir sumarið en Særún, sem kom í staðinn, ekki nema eina.
Særún er talsvert minni. Hún flytur 115 farþega en Baldur allt að 250. Þá eru engir þungaflutningar með Særúnu. Ingveldur segir að þó að Sæferðir, sem reka Særúnu, hafi staðið sig vel komi hún ekki í stað Baldurs.
„Særún er ekki Baldur. Baldur fer betur með fólk og það er til dæmis búið að vera frekar erfið veðráttan undanfarið, frekar svona hvasst, og þá er Særún bara erfið í þessum flutningum. Fólk veigrar sér við að fara þar sem þetta er miklu meira bras.“
Baldur sinnir einnig vatnsflutningum til Flateyjar. Baldur dælir allt að 20 tonnum af vatni daglega, segir Ingveldur, en Særún aðeins fimm til sex tonnum. Það sé ekki nóg þegar mikið er af fólki í eyjunni.
Ósátt við að innviðaráðherra taki ákvörðun án samráðs
Jakob og aðrir stjórnendur í Breiðafirði hafa gagnrýnt innviðaráðuneytið og Vegagerðina fyrir skamman fyrirvara. „Í rauninni var þetta tilkynning um það að Baldur yrði tekinn úr siglingum, ekkert samtal um það hvaða hagsmunir væru þá í húfi fyrir okkar svæði,“ segir Jakob. Ferðaþjónustan í Stykkishólmi taki á sig töluvert áfall. Hann nefnir 20-30% minni veltu veitingastaða og 15-20% afbókanir gistirýma.
Jakob og Ingveldur eru bæði ósátt við að Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra og þingmaður Norðvesturkjördæmis, taki þessa ákvörðun án samráðs við íbúa. Jakob væntir þess að hann þurfi að standa skil á þessari ákvörðun gagnvart kjósendum í eigin kjördæmi.
„Fólki finnst það sérstaklega sárt þegar ráðherrann er nú úr þessu kjördæmi og er að taka þessa ákvörðun með þessum hætti. Fólki finnst að ráðherrann ætti að gæta hagsmuna svæðisins mun betur,“ segir Jakob.
Hann segir að ef ákvörðunin hefði legið fyrir fyrr hefði verið hægt að gera viðeigandi ráðstafanir í ferðaþjónustu, til dæmis ráða færri starfsmenn. Einnig geti þjónustuskerðingin haft áhrif til lengri tíma.
„Ferðaþjónustan byggist náttúrulega á einhverjum stöðugleika og þetta getur haft gríðarlega afleidd áhrif í för með sér.“
Áhöfn Baldurs í útlegð
Tvö börn Ingveldar eru í áhöfn Baldurs. Hún segir áhrifin á þau mjög mikil. „Það eru ekkert allir sem myndu sætta sig við að þér yrði bara tilkynnt með nokkurra daga fyrirvara að þú ættir að vinna í Vestmannaeyjum í allt sumar. Nú eru þeir bara í útlegð.“
Ingveldur kvartar einnig yfir slæmu upplýsingaflæði. Hún segir að þegar Baldur hafi farið hafi fólk í Breiðafirði ekki vitað betur en að hann kæmi aftur 19. júní en öllum fyrir sunnan hafi verið ljóst að Baldur yrði lengur í burtu. Þau hafi frétt að búið væri að gera samning við Særúnu til lengri tíma en 19. júní.
Jakob segir að ekki hafi verið samræmi milli tilkynningar stjórnvalda og Vegagerðarinnar og þeirra upplýsinga sem sveitarfélagið fékk. Hann segir að skerpa þurfi á því að stjórnvöld veiti réttar og sannar upplýsingar.