Tóm verslunarrými í Kringlunni vekja athygli

Kringlan virðist vera að ganga í gegnum talsverðar breytingar. Daníel Tryggvi Daníelsson er einn þeirra sem láta sig málið varða í opinberri færslu og spyr:
„Veit einhver hvað er að gerast með Kringluna?
Ég kíkti þangað í morgun í fyrsta skipti í ansi langan tima og mér bara krossbrá því það virtist bara eins og allt væri farið á hausinn.
Ég taldi hvorki fleiri né færri en 13 verslunarrými sem voru auð eða verið að loka.
Það finnst mér alveg sláandi.
13 auð rými!!!
Og þau sem ég gat kíkt inní að þar var ekkert í gangi og ekki að sjá að unnið væri að því hörðum höndum að koma upp nýjum rekstri þarna, þannig að líklegast munu þau standa auð í einhvern tíma.
Er Kringlan bara orðin afgangsstærð í íslenskum verslunarrekstri. Því ég tók líka eftir því að það var þónokkuð um nýjar verslanir þarna sem ég hafði ekki séð áður og þekkti ekkert til þessara merkja, sem sagt ekki verið að draga að sér stór og þekkt vörumerki.
Ég spyr því bara aftur, hvað er að gerast með Kringluna?“
Fólk er að velta þessu fyrir sér og segir Guðmundur Snær Guðmundsson í athugasemdum: „Það er ekki nóg af bílastæðum og svo er ekki hægt að keyra um á bíl inni þannig að maður getur ekki lagt beint fyrir utan búðina sem maður á erindi í.“
Sigurður Már Sigurðsson heldur hins vegar að „allt fólkið sem ætlaði að hætta viðskiptum við Smáralindina fyrir að hafa tekið upp gjaldskyldu fyrir lagningu í 4+ klukkutíma og beina viðskiptum sínum til Kringlunnar leysi vonandi úr þessu.“
Hugsa má að afleiðingar stórbruna og áframhaldandi viðgerðir hafi leitt til margra lokaðra verslunarrýma. Í kjölfar tjónsins og stefnubreytingar stjórnar Kringlunnar í átt að upplifun og afþreyingu hafa þekkt vörumerki víst horfið á braut og rýmum verið breytt, með áherslu á nýja þjónustu fremur en hefðbundna smásölu.