Ríkissaksóknari telur ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára, eins og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður hvatti til í morgun.
Landsréttur hnekkti í síðustu viku dómi yfir skjólstæðingi Vilhjálms vegna aksturs undir áhrifum lyfseðilsskyldra lyfja. Vilhjálmur telur að öll mál frá gildistöku umferðarlaga í ársbyrjun 2020 þurfi að endurskoða í ljósi dómsins.
Innviðaráðuneytið vinnur að reglugerð til að skýra vanhæfnismörk vegna aksturs með töku lyfseðilsskyldra lyfja.
Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari segir í svari við fyrirspurn fréttastofu að ekki sé tilefni til þess. Slíkum málum sé almennt lokið með sektargerð sem sakborningur fallist á.
Allar sektargerðir lögreglustjóra eru yfirfarnar af ríkissaksóknara sem getur ógilt sektir ef þær samræmast ekki lagareglum.
Sakborningar hafa alltaf kost á því að hafna sektarboði og leita til dómstóla til að leysa endanlega úr ágreiningi í málum.
„Þannig er ljóst að dómstólar og ríkissaksóknari, í samræmi við eftirlitshlutverk embættisins, hafa nú þegar yfirfarið öll mál sem lokið hefur verið hjá lögreglustjóra af þessum toga og telur ríkissaksóknari umræddan dóm Landsréttar ekki gefa tilefni til frekari endurskoðunar á slíkum málum,“ segir í svarinu.
Þá segir ríkissaksóknari að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvort leitað verði leyfis Hæstaréttar til að áfrýja sýknudóminum í síðustu viku.