Dómsmálaráðherra hefur skipað Margréti Kristínu Pálsdóttur í embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum. Hún tekur við embættinu á miðvikudag. Margrét er ein þeirra sem sóttu um starf lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.
Hún hefur gegnt mörgum stjórnunarstörfum innan lögreglunnar frá 2020, meðal annars sem settur aðstoðarríkislögreglustjóri, og hefur verið settur lögreglustjóri á Suðurnesjum frá maí 2025.
Sex sóttu um embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum og einn dró umsókn sína til baka.