„Ekkert sér­stak­lega á­nægð“ þegar hún sá hnífinn - Vísir

„Ekkert sér­stak­lega á­nægð“ þegar hún sá hnífinn - Vísir

„Ekkert sér­stak­lega á­nægð“ þegar hún sá hnífinn - Vísir

„Þegar hún sá hann [hnífinn] nefndi hún að það hefði ekki verið það sem hún hafði hugsað sér. En hún hafði ekki um annað að velja,“ sagði Ming fyrir dómi í dag er hún flutti viðbótarskýrslu þar sem ljósi er varpað á tímalínuna í aðdraganda atviksins á hótelherbergi á Edition-hótelinu. Túlkur þýddi mál hennar úr frönsku yfir á íslensku.

Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg og sjálfsskaða. Fólki sem glímir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaðahegðun er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjallið á 1717.is og Píeta símann 552-2218 en þjónusta þeirra er aðgengileg allan sólarhringinn. 

Ef þú hefur orðið fyrir hótunum eða ofbeldi líkt og fjallað er um í fréttinni er þér bent á að hafa samband við lögreglu í síma 112 eða í netspjalli á 112.is.

Vitnaleiðslum í Edition-málinu lauk í dag, á fimmta degi, og er málflutningur á morgun. Þar er hin 56 ára Ming Ting Mancel ákærð fyrir að myrða 29 ára dóttur sína, Catherine, í samráði við eiginmann sinn, Emeric Mancel heitinn, á lúxushótelinu Reykjavik Edition í júní 2025.

Samkvæmt ákærunni eiga hjónin að hafa haldið dóttur sinni, Catherine, fastri og brugðið snöru um háls hennar til að þrengja að öndunarvegi.

Sjá einnig: Edition-málið

Aftur á móti hefur komið fram í málflutningi Ming Ting að fjölskyldan öll hafi ætlað að svipta sig lífi á hótelherberginu þessa nótt, aðfaranótt 14. júní. Ming Ting sagði að dóttir sín hefði ekki streist á móti en hefur sagt engu að síður að dóttir hennar hafi viljað fara á annan hátt. Ein af stóru spurningunum í málinu er því hvort Catherine hafi í raun haft í hyggju að svipta sig lífi.

Fékk að vita seint að hún yrði stungin

Í dag kom fram að dóttirin hafi ekki vitað að hnífur yrði notaður fyrr en örskömmu áður en faðir hennar hafi stungið hana inni á baði. Ming Ting sagði að Catherine hefði ekki vitað hverri sjálfsvígsaðferð yrði beitt fyrr en hún sá föður sinn taka upp hnífinn.

„Hún hafði ekki séð neitt sérstakt fyrir sér,“ hélt Ming áfram í dag. „En þegar hún sá hnífinn var hún ekkert sérstaklega ánægð. En svona var þetta.“

Hún sagði að dóttir sín hefði sett upp óánægjusvip sem móðirin kannaðist við. Engu að síður hefði Catherine verið búin að taka ákvörðun um að svipta sig lífi vegna þess að hún vildi ekki vera ein úr fjölskyldunni eftir á lífi.

Catherine var ekki ánægð með aðferðina en sátt við það sem við ætluðum að gera.

Ming Ting Mancel fyrir dómi

Eftir að Catherine var stungin hafi „þetta dregist á langinn“ og hún beðið föður sinn um að stinga sig aftur.

„Svo sagðist hún elska okkur.“ Það hafi verið hennar lokaorð.

S

Samkvæmt framburði Ming Ting var endanleg ákvörðun um sjálfsvíg með hníf tekin af Emeric 10. júní. Þá hafi Emeric straujað símtæki Ming Ting. Catherine hafi aftur á móti ekki fengið að vita af sjálfsvígsaðferðinni og Ming Ting sagði Catherine ekkert hafa viljað vita um það.

Næsta kvöld, 11. júní, hafi þau farið á sushi-veitingastað í Reykjavík og átt þar sína síðustu kvöldmáltíð saman.

Síðan hafi þau farið aftur inn á hótelherbergi. Enginn kom aftur út fyrr en um sjö að morgni 14. júní þegar Ming Ting gaf sig fram við móttökuna á hótelinu og lögreglan var kölluð á vettvang.

Í leitarsögu í iPad-tæki föðurins mátti finna, samkvæmt skýrslu lögreglumanns, dæmi um leitir að sjálfsvígsaðferðum, svo sem „sögulega hópsjálfsvíg“ og „sjálfsvíg með gasi“ en einnig var leitað eftir því hvort sársaukafullt væri að stinga sig í hjartað og hvar hjartað væri að finna í kvenlíkama. Þessar leitir voru allar frá 10. og 11. júní, þá allt að tveimur sólarhringum fyrir atvikið.

Þau hafi lítið sem ekkert borðað á þeim tíma sem þau dvöldu inni á hótelherberginu. „Það var okkur ekki efst í huga.“

Hafi ekki mótmælt meintum sjálfsvígsáformum Catherine

Ming Ting sagði fyrir dómi að um það bil tveimur vikum fyrir Íslandsferðina hefðu þau setist með dóttur sinni inni í stofu heima í Dyflinni og greint henni frá því að þau tvö ætluðu að svipta sig lífi.

Ming sagði að foreldrarnir hefðu ekki ætlast til þess að Catherine svipti sig líka lífi heldur hefði dóttir þeirra alfarið komist að þeirri niðurstöðu sjálf og sagst ekki vilja lifa ein án þeirra.

Spurð út í fyrstu viðbrögð Catherine við ákvörðun foreldranna sagði Ming Ting: „Ég held að hún hafi þurft svolítinn tíma til að átta sig á þessu.“ Catherine hafi ekki sýnt nein viðbrögð strax.

„Hún var hrædd um að við værum að yfirgefa hana og það er það sem hræddi hana allra mest,“ bætti Ming við. Hún hafi þó ekki reynt að sannfæra foreldra sína um að skipta um skoðun

Það var þó ekki að heyra í málflutningi Ming Ting að foreldrarnir hefðu með nokkrum hætti mótmælt því að Catherine fyrirfæri sér. Þau hafi þó beðið hana um að taka sér tíma í að melta ákvörðunina. Ming Ting sagði einnig að hún héldi ekki að Catherine hefði nokkurn tímann áður íhugað sjálfsvíg.

Vildu hlífa Catherine frá „þessari meinfýsnu skepnu“

Í dómssal var Ming einnig spurð út í tölvupóst sem undirritaður er með nafni allra þriggja fjölskyldumeðlima – Emerics, Ming Ting og Catherine. Ming sagðist ekki hafa séð tölvupóstinn fyrr en hann var borinn undir hana seinna meir. Hann hafi væntanlega verið skrifaður af Emeric.

Pósturinn var sendur á systur Emerics, sem hefur kært fjölskylduna fyrir meintan erfðafjárdrátt úr reikningum móður þeirra, þ.e. ömmu Catherine.

Þar kom meðal annars fram að hjónin hefðu viljað „hlífa henni [Catherine] við að þola þessa meinfýsnu skepnu“ og staðfesti Ming Ting að þar væri átt við frænkuna.

Fram hefur komið í máli hennar að Emeric hafi verið mjög niðurdreginn og ekki talið sig fært að mæta þessum ásökunum. Þá hafi Catherine einnig verið kærð í málinu og hjónunum hafi þótt ólíklegt að Catherine gæti varist ásökununum ein á báti.

Veikindi höfðu áhrif á æskuárin

Ming var einnig spurð út í samband sitt við dóttur sína en þar sagði hún að Catherine væri háð föður sínum.

„Þegar hún var mjög lítil var hún alltaf mjög glaðleg og mannblendin. En þegar flogaveikin byrjaði lokaði hún sig miklu meira af,“ hélt hún áfram en tók þó fram að hún hafi í eðli sínu verið mjög glaðlynd stúlka.

Veikindin hafi engu að síður haft varanleg áhrif. „Skólafélagarnir komu öðruvísi fram við hana vegna þess að hún var eftir á í hreyfiþroska,“ hélt hún áfram. 

Hún hafi þurft lengri tíma til að ljúka verkefnum og prófum og þurft að hitta ýmsa sérfræðinga til þess að vinna upp þá þroskaskerðingu sem hún hafi orðið fyrir.

„Krakkarnir sáu hana koma og fara og héldu áfram að koma öðruvísi fram við hana [...] alveg upp í framhaldsskóla.“

Spurð hvort þær lýsingar sem fyrrverandi samstarfsmenn Catherine báru henni, þ.e. að hún væri glaðlynd og dugleg, rímuðu við upplifun Ming Ting af dóttur sinni, svaraði hún: 

„Það kemur ekkert á óvart. Hún vildi gera hlutina vel, en henni fannst slæmt þegar aðrir starfsmenn sinntu sinni vinnu ekki eins vel. En hún var líka í eðli sínu mjög glaðlynd.“

Átti erfitt með að vera ein

Því næst var hún spurð út í það hversu sjálfstæð dóttir hennar væri. Hún sagði að Catherine myndaði gjarnan sjálfstæðar skoðanir og væri ekki alltaf sammála foreldrum sínum í öllu.

Dómari spurði þá hvort Catherine hefði verið háð þeim: „Sérstaklega háð föður sínum. Það sem hann sagði skipti hana miklu. Hún hefði getað búið sjálf. Hún vildi ekki vera sjálfstæð og vildi ekki búa ein.“

Catherine hafi alltaf óttast að vera ein.

„Hún hafði verið þannig frá því að hún var pínulítil. Meira að segja þegar hún varð fullorðin þurftum við bara að vera fjarri í stuttan tíma til þess að það yrði óþægilegt.“

Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg og sjálfsskaða. Fólki sem glímir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaðahegðun er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjallið á 1717.is og Píeta símann 552-2218 en þjónusta þeirra er aðgengileg allan sólarhringinn. 

Ef þú hefur orðið fyrir hótunum eða ofbeldi líkt og fjallað er um í fréttinni er þér bent á að hafa samband við lögreglu í síma 112 eða í netspjalli á 112.is.

#ekkert #hún #sérstaklega #ánægð #þegar


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262903318d/-ekkert-serstaklega-anaegd-thegar-hun-sa-hnifinn

📰 Aðrar fréttir

Upp­ör­vandi fréttir fyrir Demó­krata - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Upp­ör­vandi fréttir fyrir Demó­krata - Vísir
Kosið verður þann 3. nóvember en nú þegar hafa að minnsta kosti 700 þúsund kosið í allavega þrjátíu ríkjum. Gögn segja svipaða sögu og kannanir hafa g...
Upp­sagnir hjá Kletta­bæ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Upp­sagnir hjá Kletta­bæ - Vísir
Þetta segir í skriflegu svari Jóhönnu M. Fleckenstein, framkvæmdastjóra Klettabæjar, við fyrirspurn fréttastofu. Hjá Klettabæ starfa yfir fimm hundruð...
Ingó veðurguð hafði betur í Lands­rétti - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Ingó veðurguð hafði betur í Lands­rétti - Vísir
Landsréttur kvað upp dóm sinn þess efnis klukkan 15 en hann hefur ekki verið birtur og því liggja forsendur hans ekki fyrir að svo stöddu. Ummælin sem...
Krist­rún til­búin í að­gerðir - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Krist­rún til­búin í að­gerðir - Vísir
Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 hefur hingað til verið gert ráð fyrir hækkunum á almennum krónutölugjöldum og gjaldskrám ríkisstofnana um 5,2 prós...
Takmarka gjaldskrárhækkanir við 2,5%
📅 01.10.2026 👁️ 0
Takmarka gjaldskrárhækkanir við 2,5%
Krónutölugjöld og gjaldskrár ríkisins hækka um 2,5% um áramót en ekki um 5,2% eins og ráð var fyrir gert í fjárlagafrumvarpi næsta árs. Þessu greindi ...
Inga vildi alls ekki svara spurningum frétta­manns - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Inga vildi alls ekki svara spurningum frétta­manns - Vísir
Frá því að Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, steig fram og skilaboð milli hans og fyrrverandi aðstoðarkonu hans vo...
Réttur fólks með þroskahömlun til að taka skaðlegar ákvarðanir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Réttur fólks með þroskahömlun til að taka skaðlegar ákvarðanir
Sonur Ástu Maríu er 26 ára en hann hefur búið í eigin íbúð í þjónustukjarna í 4 ár. Þar nýtur hann aðstoðar starfsfólks en hann er með downs og einhve...
Þorsteinn Pálsson: Að niðurgreiða verðbólgu með gildislausum verðbólgukrónum er eins og að lækna rauða hunda með því að velta sér upp úr hveiti
📅 01.10.2026 👁️ 1
Þorsteinn Pálsson: Að niðurgreiða verðbólgu með gildislausum verðbólgukrónum er eins og að lækna rauða hunda með því að velta sér upp úr hveiti
„Atvinnulífið og verkalýðsfélögin hafa enn á ný myndað ábyrgðarlaust bandalag til að þvinga ríkisstjórnina til að hverfa frá ábyrgri ríkisfjármálastef...
Segja Hafnarfjörð orðinn verri stað fyrir barnafjölskyldur - „Virkilega slæmt“
📅 01.10.2026 👁️ 1
Segja Hafnarfjörð orðinn verri stað fyrir barnafjölskyldur - „Virkilega slæmt“
Bæjarfulltrúi í minnihluta bæjarstjórnar í Hafnarfirði segir að bakslag hafi orðið í stöðu barnafjölskyldna í bænum eftir að meirihlutinn samþykkti að...
Fleiri leigjendur að festast á leigumarkaði
📅 01.10.2026 👁️ 1
Fleiri leigjendur að festast á leigumarkaði
Niðurstöður árlegrar leigumarkaðskönnunar benda til þess að fleiri leigjendur séu að festast á leigumarkaði. Hlutfall leigjenda sem leigir af nauðsyn ...
Ákærður fyrir veiðar í Þverá – Krefjast upptöku á veiðistöng og laxveiðihjóli
📅 01.10.2026 👁️ 1
Ákærður fyrir veiðar í Þverá – Krefjast upptöku á veiðistöng og laxveiðihjóli
Lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur ákært belgískan mann á sextugsaldri fyrir brot á lögum um lax- og silungsveiði. Manninum er gefið að sök að hafa ...
Hörður Arnarson lætur af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar
📅 01.10.2026 👁️ 1
Hörður Arnarson lætur af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar
Hörður Arnarson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar, en hann tók við stjórn fyrirtækisins í miðju efnahagshruni árið 2009. Þ...
Dregur fram manneklu á hjúkrunarheimilum
📅 01.10.2026 👁️ 1
Dregur fram manneklu á hjúkrunarheimilum
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, formaður Heilahjálpar, segir það lágmark að bera gjöf sterkra geðlyfja undir aðstandendur fólks með heilabilun.Bæði hún og ...
Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar
📅 01.10.2026 👁️ 0
Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar
Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Hörð­ur Arn­ar­son læt­ur af störf­um sem for­stjóri Lands­virkj­un­ar. Að­stoð­ar­for­stjóri tek­ur tíma­b...
Af hverju var Christa Pike dæmd til dauða?
📅 01.10.2026 👁️ 0
Af hverju var Christa Pike dæmd til dauða?
Bandarísk kona á dauðadeild fangelsis í Tennessee lifði af tvær aftökutilraunir í gærkvöld. Christa Pike var dæmd til dauða fyrir manndráp fyrir um 30...
Hörður lætur af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar
📅 01.10.2026 👁️ 1
Hörður lætur af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar
Hörður Arnarson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar. Hann tók við stjórn fyrirtækisins síðla árs 2009. Landsvirkjun greinir ...
Russia targets busy bridge in central Kyiv in broad daylight
📅 01.10.2026 👁️ 0
Russia targets busy bridge in central Kyiv in broad daylight
The Pivdennyi bridge came under fire as a metro train was travelling across - the first such attack on Kyiv's bridges.
Ráðherra krefst framsals ómansks aðstoðarflugmanns hjá Flydubai sem sakaður er um að hafa reynt að brotlenda vélinni
📅 01.10.2026 👁️ 0
Ráðherra krefst framsals ómansks aðstoðarflugmanns hjá Flydubai sem sakaður er um að hafa reynt að brotlenda vélinni
Ráðherra krefst framsals ómansks aðstoðarflugmanns hjá Flydubai sem sakaður er um að hafa reynt að brotlenda vélinni Fréttin1. október 2026ErlentLeave...
Á­kærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Á­kærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni - Vísir
Í ákæru þess efnis, sem þingfest var á þriðjudaginn, segir að maðurinn sé ákærður fyrir nauðgun, sifjaspell og stórfellt brot í nánu sambandi gegn dót...
Kolefniskrakkarnir aftur komnir á kreik í Hvalfirði
📅 01.10.2026 👁️ 0
Kolefniskrakkarnir aftur komnir á kreik í Hvalfirði
Kolefniskrakkarnir aftur komnir á kreik í Hvalfirði Fréttin1. október 2026Aðsend grein, Júlíus Valsson, LoftslagsmálLeave a Comment Júlíus Valsson skr...
Eiður aug­lýsir tyrk­neska hárígræðsluklíník - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Eiður aug­lýsir tyrk­neska hárígræðsluklíník - Vísir
Auglýsingin birtist á samfélagsmiðlum Dr. Cinik í gær og sýnir frá hárígræðsluferli Eiðs. „Ég er Eiður Guðjohnsen og ég er hér í Istanbúl, [í] klíník ...
Russian dissident Garry Kasparov says US warned him of danger to his life
📅 01.10.2026 👁️ 0
Russian dissident Garry Kasparov says US warned him of danger to his life
"My family and I will not truly be safe as long as Putin is in power," says the former chess world champion.
Gunnar Örn ráðinn sölustjóri Haga miðla
📅 01.10.2026 👁️ 1
Gunnar Örn ráðinn sölustjóri Haga miðla
Gunnar Örn Helgason hefur verið ráðinn sölustjóri Haga miðla, nýrrar rekstrareiningar Haga á sviði smásölumiðlunar. Gunnar býr yfir rúmlega 20 ára rey...
Óhugnanlegt atvik í Laugardal – Unglingur bundinn og skilinn eftir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Óhugnanlegt atvik í Laugardal – Unglingur bundinn og skilinn eftir
Unglingur í Laugardal var bundinn af samnemendum sínum og skilinn eftir í kjallara fjölbýlishúss í september. Límband mun einnig hafa verið sett yfir ...
Fótalaus eftir að læknar fjarlægðu rangan fót - „Það er einfaldlega engin afsökun til“
📅 01.10.2026 👁️ 1
Fótalaus eftir að læknar fjarlægðu rangan fót - „Það er einfaldlega engin afsökun til“
Bandarísk kona er fótalaus eftir að læknir fjarlægði fyrst rangan fót af henni. Konan krefst hárra skaðabóta.Breska blaðið The Daily Star greinir frá ...
Tæplega helmingur með íþyngjandi leigu þrátt fyrir batnandi stöðu
📅 01.10.2026 👁️ 1
Tæplega helmingur með íþyngjandi leigu þrátt fyrir batnandi stöðu
Horfurnar hjá leigjendum virðast fara batnandi, samkvæmt nýrri leigumarkaðskönnun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar. Þar kemur fram að leig...
Hungur sverfur að Jemenum
📅 01.10.2026 👁️ 1
Hungur sverfur að Jemenum
Sífellt fleiri börn í Jemen þjást af vannæringu. Eftir að stríðsátök brutust út á ný hafa 145.000 manns lagt á flótta. Alþjóða heilbrigðisstofnunin va...
Flydubai passenger describes hugging his children as plane nosedived during attack
📅 01.10.2026 👁️ 1
Flydubai passenger describes hugging his children as plane nosedived during attack
Adam Polovincik tells the BBC he told his young children "everything is going to be all right" as flight plunged more than 17,000ft (5,200m).
Væntingar um út­spil tengt gjalda­hækkunum - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Væntingar um út­spil tengt gjalda­hækkunum - Vísir
„Viðsemjendur okkar eru að kalla eftir viðbragði við forsendubrestinum en við  erum á hinn bóginn líka að upplifa forsendubrest þar sem verðmætaauknin...
Allir níu neita sök í Straumsvíkurmálinu
📅 01.10.2026 👁️ 1
Allir níu neita sök í Straumsvíkurmálinu
Allir níu sakborningarnir í Straumsvíkurmálinu neituðu sök við þingfestingu málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Aðeins einn var viðstaddur þingfestin...
Leiðir skilja hjá Hrafn­hildi Helgu og Árna - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Leiðir skilja hjá Hrafn­hildi Helgu og Árna - Vísir
Hrafnhildur staðfesti tíðidin í samtali við Smartland fyrr í dag. Árni og Hrafnhildur hafa verið saman um árabil, gengu í hjónaband júní 2023 og eiga ...
Neituðu sök við þing­festingu Straumsvíkur­málsins - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Neituðu sök við þing­festingu Straumsvíkur­málsins - Vísir
Af karlmönnunum níu eru sex erlendir ríkisborgarar og þrír Íslendingar. Einn ákærðra, Arthur De Araujo Faria, mætti fyrir dómara en hinir átta tóku þá...
Kveður svefnlyfin eftir á­tján ára notkun - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Kveður svefnlyfin eftir á­tján ára notkun - Vísir
Jóhanna Þuríður Þorsteinsdóttir, 81 árs kennari og sjúkraliði, er meðal fjölmargra eldri borgara sem hafa tekið svefnlyf árum saman. Hún hóf notkun þe...
Þor­steinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garða­bænum - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Þor­steinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garða­bænum - Vísir
Þetta kemur  fram í færslu Þorsteins á samfélagsmiðlinum Facebook. Á fasteignavef Vísis má sjá að um er að ræða glæsilegt og mikið endunrnýjað 288,4 f...
Vegir lokast vegna vatnavaxta
📅 01.10.2026 👁️ 1
Vegir lokast vegna vatnavaxta
Rigningar síðustu daga eru farnar að valda skemmdum á vegum á suðaustanverðu landinu.Þórsmerkurvegi var lokað fyrir umferð milli Nauthúsagils og Jökul...
Newborn baby found near Bangor may have been in water for weeks
📅 01.10.2026 👁️ 1
Newborn baby found near Bangor may have been in water for weeks
The body of the baby found along the north Wales shoreline was a girl, a post-mortem has revealed.
Lögreglan hafði betur gegn skipverja Bandero í deilu um farsíma
📅 01.10.2026 👁️ 1
Lögreglan hafði betur gegn skipverja Bandero í deilu um farsíma
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem kröfu skipverja Bandero, um að fá haldlagningu aflétt af farsíma sínum, var hafnað.
Rússar hugðust myrða Kasparov í sumar – „Ég mun hvorki láta staðar numið né fela mig“
📅 01.10.2026 👁️ 1
Rússar hugðust myrða Kasparov í sumar – „Ég mun hvorki láta staðar numið né fela mig“
Garry Kasparov, fyrrverandi heimsmeistari í skák, hefur brugðist við fregnum af áætlunum Rússa til þess að ráða hann og fleiri andófsmenn af dögum í s...
Hörður boðar óvænt til starfsmannafundar
📅 01.10.2026 👁️ 1
Hörður boðar óvænt til starfsmannafundar
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, hefur óvænt boðað til starfsmannafundar hjá fyrirtækinu eftir hádegi í dag. Frá þessu greina Vísir og mbl.i...
Fannst nakinn á látinni 93 ára konu – Súdanskur hælisleitandi gunaður um nauðgun og morð
📅 01.10.2026 👁️ 1
Fannst nakinn á látinni 93 ára konu – Súdanskur hælisleitandi gunaður um nauðgun og morð
34 ára súdanskur flóttamaður hefur verið settur í gæsluvarðhald í Frakklandi, grunaður um að hafa nauðgað og myrt 93 ára konu á heimili hennar í Toulo...
Rannsókn: 44 prósent demókrata sætta sig við ofbeldi til að stöðva Trump
📅 01.10.2026 👁️ 1
Rannsókn: 44 prósent demókrata sætta sig við ofbeldi til að stöðva Trump
Rannsókn: 44 prósent demókrata sætta sig við ofbeldi til að stöðva Trump Fréttin1. október 2026Erlent, TrumpLeave a Comment Fjórðungur bandarískra ful...
New four-stage cycling tour coming to the Canary Islands
📅 01.10.2026 👁️ 1
New four-stage cycling tour coming to the Canary Islands
The Canary Islands will host their first professional international stage cycling race next January, with a new Vuelta Ciclista a Canarias taking plac...
Hörður boðar starfsmannafund hjá Landsvirkjun
📅 01.10.2026 👁️ 1
Hörður boðar starfsmannafund hjá Landsvirkjun
Boðað hefur verið til starfsmannafundar hjá Landsvirkjun eftir hádegi. Vísir greindi fyrst frá fundinum og sagði að Hörður Arnarson forstjóri hefði bo...
Jagtar Singh Johal: Scot detained in India freed on bail after nine years in prison
📅 01.10.2026 👁️ 1
Jagtar Singh Johal: Scot detained in India freed on bail after nine years in prison
The Sikh activist from Dumbarton was arrested in 2017 in connection with alleged terror offences.
Fjórir grunaðir um að flytja inn fimm kíló af amfetamíni með póstsendingu
📅 01.10.2026 👁️ 1
Fjórir grunaðir um að flytja inn fimm kíló af amfetamíni með póstsendingu
Fjórir karlmenn eru grunaðir um að hafa flutt fimm kíló af amfetamíni til landsins með hraðsendingu frá Þýskalandi. Þrír þeirra voru handteknir í byrj...
„Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri til­viljun“ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
„Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri til­viljun“ - Vísir
Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingarinnar greindi frá málinu í færslu á Facebook og skrifar að kærunefnd útboðsmála hafi úrskurðað útboðið ólöglegt...
Lil Wayne trú­lofaður 03-módeli - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Lil Wayne trú­lofaður 03-módeli - Vísir
Lil Wayne, sem heitir réttu nafni Dwayne Michael Carter Jr., virtist staðfesta trúlofunina í myndbandi sem birtist á Instagram-síðu rapparans B.G.  í ...
Rúmlega 200 nýjar íbúðir í Hafnarfirði staðið tómar í meira en ár
📅 01.10.2026 👁️ 1
Rúmlega 200 nýjar íbúðir í Hafnarfirði staðið tómar í meira en ár
Samkvæmt upplýsingum frá HMS eru alls tæplega 460 nýjar íbúðir til sölu í Hafnarfirði, töluvert fleiri en í Kópavogi, 190, og Garðabæ, 286, en þó ekki...
Góðar og slæmar fréttir í skýrslu landlæknis um sýklalyfjanotkun
📅 01.10.2026 👁️ 1
Góðar og slæmar fréttir í skýrslu landlæknis um sýklalyfjanotkun
Anna Margrét Halldórsdóttir, yfirlæknir á sviði sóttvarnalæknis, segir slæmar og góðar fréttir að finna í ársskýrslu landlæknis um sýklalyfjanotkun á ...
Æskuvinur hins látna sagður hafa skuldað honum milljónir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Æskuvinur hins látna sagður hafa skuldað honum milljónir
Æskuvinur portúgalska mannsins sem fannst látinn á heimili sínu í Kársnesi í Kópavogi í nóvember í fyrra skuldaði honum milljónir vegna fíkniefnaviðsk...