Hildigunnur Birgisdóttir er fædd árið 1980 og hefur verið fulltrúi okkar Íslendinga á hinni virtu hátíð Feneyjartvíæringnum. Í listsköpun sinni lítur hún gagnrýnum augum á fjöldaframleiðslu, neyslumenningu, hnattræn framleiðslu- og útflutningskerfi og undarlegt lífshlaup varanna sem þau geta af sér.
„Óheppilegar afurðir neysluhyggju eru efniviðurinn og manngerð kerfi eru áhöldin,“ segir Hildigunnur um þetta.
Fjöldi fólks leit við að sjá listræna nálgun Hildigunnar á jólin en hér má sjá vel valdar myndir frá opnuninni: