Vitnaleiðslum lauk í Edition málinu nú síðdegis. Við förum yfir réttarhöldin með fréttamanni í myndveri.
Sex eru látnir og fleiri slasaðir eftir skotárás í bænum Stade nærri Hamborg í Þýskalandi. Tveir eru í haldi lögreglu.
Þá hittum við sunnlenskan ýtukarl á áttræðisaldri sem hefur lengri starfsreynslu í faginu en flestir, skoðum ísgerð sem hefur meðal annars framleitt Jagermeisterís og hittum börn á leikskólanum Holti sem fögnuðu alþjóðlega drullumallsdeginum.