Að minnsta kosti 1.300 dauðsföll er hægt að rekja til hitabylgjunnar í Evrópu síðustu daga. Þetta fullyrðir Alþjóðaheilbrigðisstofnunin. Aftur er spáð um og yfir 40 stiga hita á næstu dögum á Spáni og í Portúgal.
Í hitabylgju geta myndast kjöraðstæður fyirr þrumuveður og það hefur sannarlega sýnt sig síðustu daga.
Kæfandi hiti gerði fyrst vart við sig um vestanverða Evrópu en bylgjan hefur fært sig austur. Viðvaranir vegna hita eru meðal annars í gildi í Búlgaríu, Serbíu, Svartfjallalandi og Króatíu.
„Þessi hiti er nær óbærilegur, sérstaklega fyrir eldra fólk og ung börn. Þau eiga mjög erfitt uppdráttar núna,“ segir Silvija Totar, læknir í Zagreb.
Á Spáni og í Portúgal er pásan stutt frá áköfum hitanum. Þar tekur að hitna aftur næstu daga og um helgina er spáð um og yfir 40 stigum.
Óvenjuskæð miðað við árstíma
Hitabylgjan er óvenjulega skæð miðað við júnímánuð. Hitamet hafa ítrekað fallið víða í Evrópu síðustu daga. Í nokkrum löndum hefur verið mesti hiti frá því mælingar hófust.
- Danmörk 36,6
- Þýskaland 41,7
- Pólland 40,5
- Tékkland 41,9
- Ungverjaland 40,7
Og síðdegis í dag bætist Slóvakía í þennan hóp þegar hiti mældist þar 40,5 stig. Þá hafa hitamet í júnímánuði fallið í minnst fjórum löndum.
- Bretland 37,3
- Hollandi 39,4
- Sviss 39
- Spáni 42,7
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir að rekja megi að minnsta kosti 1.300 dauðsföll til hitabylgjunnar sem hófst 21. júní. Það eru álíka margir og allir íbúar í Stykkishólmi.
„Síðan í síðustu viku höfum við fengið æ fleiri fyrirspurnir og síðan um helgina er útfararstofan okkar full. Við höfum ekki pláss fyrir eitt lík enn og hitabylgjan er ástæðan,“ segir Zouhaeir Hertelli eigandi útfararstofu í París.
Hann segist hafa stungið upp á því við stjórnvöld að settar verði upp kæligeymslur fyrir framan útfararstofuna.
Á annarri útfararstofu sem AP ræddi við er ástandið eins. „Vanalega sjáum við um þrjár til fjórar fjölskyldur í einu. Álagið er tvöfalt eða þrefalt á við venjulega tíma og við getum ekki svarað fyrirspurnum fjölskyldna strax því við vitum ekki hvert við getum farið með þau látnu,“ segir Veronique Bertrand framkvæmdastjóri.