Frekari viðhaldsvinnu á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum hefur verið frestað fram til 17. ágúst. Mikil rigning hefur valdið töfum á viðhaldsvinnunni sem átti að ljúka 16. maí. Nú hefur verið ákveðið að fresta frekari viðgerðum þar til mesta sumarumferðin er yfirstaðin.
Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að burðarþol brúarinnar, sem var byggð 1947, hafi minnkað í áranna rás og afar mikilvægt að stöðva ryðmyndun í köplum sem fyrst.
Unnið hefur verið að viðgerðum á brúnni alla daga frá klukkan 8 á morgnana til klukkan 19 á kvöldin frá 26. maí. Opið hefur verið þess á milli og líka fjórum sinnum yfir daginn, ýmist í hálftíma eða klukkutíma í senn: 09:45–10:15, 12:00–13:00, 14:45–15:15, 16:45–17:15 Það skipulag tekur gildi að nýju 17. ágúst.