Hilmar R. Sölvason, sem verður 90 ára í desember næstkomandi hefur alltaf verið mikill ævintýramaður og það sannaði sig heldur betur þegar hann fór í Zip-Line í Hveragerði föstudaginn 26. júní. Zipline er svifbraut þar sem þú ert festur í öryggisbelti og rennir þér eftir stálvír yfir gil og landslag.
90 ára 26. desember
„Pabbi kallaði þetta „fyrsta í afmæli“ en hann verður 90 ára 26. desember næstkomandi. Með hluta af börnum sínum og barnabörnum hélt hann í Hveragerði á föstudaginn þar sem hann renndi sér af stað brosandi og sýndi enn á ný að ævintýraþráin er síður en svo horfin.
Þegar niður var komið beið fjölskyldan með kampavínsglös og skálaði fyrir afmælisbarninu við mikinn fögnuð. Að því loknu lá leiðin í sumarbústað við fallega Álftarvatn þar sem notið var léttra veitinga, góðra samverustunda og áframhaldandi afmælisfagnaðar,” segir Sigurlína, dóttir Hilmars.
Hornstrandir, Hnífsdalur og Keflavík
Hilmar fæddist í Efri-Miðvík í Aðalvík á Hornströndum. Þegar hann var níu ára flutti fjölskyldan í Hnífsdal eftir að heimabyggðin lagðist í eyði. Sautján ára gamall flutti hann síðan með foreldrum sínum til Keflavíkur, þar sem hann hefur búið allar götur síðan.
Árið 2021 lést eiginkona hans, Björg Birna Jónsdóttir, eftir langa og farsæla sambúð. Saman eignuðust þau fimm börn og í dag gleðst Hilmar yfir stórum og samheldnum hópi barna, barnabarna og annarra afkomenda.
Hress og kátur alla daga
Þrátt fyrir að vera kominn á tíræðisaldur er Hilmar einstaklega hress og duglegur. Hann mætir í líkamsrækt þrisvar í viku og hefur alla tíð lagt rækt við heilsuna. Í um fjóra áratugi fór hann árlega í skíðaferðir erlendis, en árið 2025 ákvað hann að hengja skíðin á hilluna, þótt ævintýrunum sé greinilega hvergi nærri lokið.