Ming Ting Mancel segir Catherine dóttur sína hafa beðið föður sinn um að stinga sig aftur eftir að dauði hennar dróst á langinn. Mancel er ákærð fyrir að bana þrítugri dóttur sinni í samverknaði við eiginmann sinn.
Catherine og faðir hennar fundust látin á hótelherbergi á Edition-hótelinu í Reykjavík í fyrra. Mancel er ákærð fyrir manndráp og brot í nánu sambandi. Hún gaf skýrslu í Héraðsdómi Reykjavíkur þegar aðalmeðferð hófst um miðjan mánuð og aftur í dag.
Mancel segir að Catherine hafi ekki viljað ræða um sjálfsvíg og ekkert viljað um það vita. Áður hefur hún sagt að fjölskyldan hafi ákveðið að koma til Íslands til að deyja saman því eiginmaður hennar, Emeric Mancel, hefði verið með banvænan sjúkdóm.
Áttu enga kveðjustund
Mancel segir þau hjónin hafa rætt óljóst saman um sjálfsvíg. Þegar stundin hafi runnið upp hafi Emeric kynnt þeim hnífstungu sem aðferðina sem þau myndu nota til sjálfsvígs.
„Hún sá hnífinn og hún vissi um hvað var að ræða,“ segir Mancel. Catherine hafi sagt að hún hefði ekki séð þetta fyrir sér svona. Fljótlega eftir það hafi fjölskyldan farið inn á bað þar sem Emeric hafi stungið Catherine.
Mancel segir fjölskylduna ekki hafa átt neina kveðjustund saman. Þau hafi þegar ákveðið að fara saman og ekki talið þörf á að kveðjast. Það eina sem Catherine hefði lagt til væri að aðferðin sjálf yrði sem sársaukaminnst.
Leitarsaga um sjálfsvíg og hnífsstungur
Mancel segir mann sinn hafa þurrkað allt út af síma hennar þann 11. júní 2025, þremur dögum áður en Emeric og Catherine fundust látin. Hún hafi ekki kunnað að gera það sjálf og afhent honum símann svo hann gæti gert það.
Hann hafi sagst ætla að þurrka gögn af öllum snjalltækjum fjölskyldunnar.
Spjaldtölva Emerics var þó ekki hreinsuð, líkt og fram kom í vitnisburði lögreglu í dag. Við rannsókn á henni kom í ljós leitarsaga um sjálfsvíg og hnífsstungur. Á henni fundust til að mynda leitarorð sem tengdust staðsetningu hjartans í líkama kvenna, hve lengi fólk lifir eftir hnífsstungu í hjartað og hvernig fólk getur varist hnífaárás.
Mancel segist hafa vitað af þessu upp að vissu marki en ekki nákvæmlega að hverju Emeric leitaði. Spurð hvers vegna hann leitaði að þessu segir Mancel að eiginmaður hennar hefði viljað „gera þetta með skilvirkum hætti“.