Trump færð meiri völd
Dómur Hæstiréttar Bandaríkjanna staðfestir að Bandaríkjaforseti megi reka embættismenn sjálfstæðra stofnana og opnar leiðina að hreinsunum í stjórnkerfinu. „Ringulreið mun fylgja í kjölfarið,“ skrifaði Sonia Sotomayor í séráliti.
Hæstiréttur Bandaríkjanna efldi í dag völd Donalds Trumps forseta til að reka meðlimi óháðra ríkisstofnana, en veitti Seðlabanka Bandaríkjanna vernd með því að koma í veg fyrir brottrekstur seðlabankastjórans Lisu Cook.
Í úrskurði með sex atkvæðum gegn þremur hafnaði íhaldssamur meirihluti réttarins áskorun Rebeccu Slaughter, fulltrúa demókrata í Alríkisviðskiptanefndinni, og úrskurðaði að Trump hefði vald til að reka „undirmenn sem fara með vald forsetans“.
Búist er við að ákvörðunin hafi víðtækar afleiðingar, þar sem Trump hefur af hörku reynt að auka framkvæmdavald sitt um leið og hann vinnur að því að umbreyta bandarískri stjórnsýslu og koma pólitískum bandamönnum fyrir í lykilstöðum. Trump og fylgismenn hans hafa talað fyrir kenningu um aukið vald forsetans, kenninguna um einhliða framkvæmdavald (e. unitary executive), sem felur í sér takmarkalaus áhrif forseta yfir framkvæmdavaldinu.
Trump fagnaði úrskurðinum í færslu á samfélagsmiðlum og sagði hann auka völd forsetaembættisins „á tíma þegar þess er mest …