Fornleifauppgröftur fer fram á lóð Laugavegar 1 sem stendur, einu af elstu húsum Reykjavíkur. Húsið var nýlega rifið en verður byggt upp að nýju í upprunalegri mynd.
Sólveig Guðmundsdóttir Beck jarðfornleifafræðingur rannsakar þar það sem eftir er af mannvistarleifum frá 19. öld sem tengjast þeim húsum sem stóðu á lóðinni.
Byggt árið 1848
Framhúsið byggði Gustav Ahrenz, trésmiður og malari, árið 1848. Jón Pétursson, dómstjóri, keypti það af honum ári síðar og bjó þar ásamt fjölskyldu sinni til 1903. Verslunin Vísir var lengst af í húsinu – hún var opnuð 1915 og var rekin þar til ársins 2015.
„Allt sem við erum að finna er í rauninni 19. öld, mið og seinni hluti 19. aldar þannig að það er ekkert eldra sem er að koma í ljós hérna. Og það er í rauninni ekkert skrýtið af því að það voru í rauninni, áður en að húsið er byggt, bara tún og það voru engin hús hérna samkvæmt gömlum kortum,“ segir Sólveig.
Meðal þess sem Sólveig hefur fundið eru leifar af móösku og steinkolum sem fjölskyldan úr framhúsinu skildi eftir sig ásamt brotnum borbúnaði, diskum og skálum sem rakin hafa verið aftur til 19. aldarinnar.
Hafa áður byggt upp eldri hús á Íslandi
Eignarhaldsfélagið Arctic fyrir Icewear stendur að uppbyggingunni. Það hefur áður endurbyggt gamalt hús við Hafnarstræti 106 á Akureyri.
Byggingarefnið sem upprunalega var notað til að smíða Laugaveg 1 er komið til ára sinna en reynt verður að nota eins mikið af upprunalega efninu og hægt er. Efnið sem hægt var að bjarga er í geymslu þar til uppbygging hefst.
Sjá má hvernig húsið gæti litið út að uppbyggingu lokinni á myndunum hér fyrir neðan.