Menntasjóður námsmanna hefur stefnt konu á fertugsaldri vegna gjaldfalinnar skuldar upp á meira en 21 milljón króna. Konan tók lánið árið 2009, lauk námi 2015 og hefur ekki greitt af því frá árinu 2023. Skuldin var gjaldfelld 2024.
Konan, sem er íslensk, á lögheimili í Ástralíu en ekki hefur tekist að birta henni stefnu þar sem hún býr ekki á uppgefnu heimilisfangi. Þess vegna er stefnan birt í Lögbirtingablaðinu í dag.
Í stefnunni kemur fram að alþjóðasamningar um birtingu á dómsskjölum, svokallaður Haag-samningur, gildi ekki ef heimilisfang er óþekkt og sama staða hafi komið upp í beinum samskiptum milli stjórnvalda á Íslandi og Ástralíu. Engin miðlæg skrá sé til um búsetu fólks og yfirvöld fylkja og héraða í Ástralíu gera kröfu um nákvæmt heimilisfang til að ganga í þessi mál.
Því hafni Ástralir beiðni um að hafa uppi á skuldaranum.