Árásarmaður sem skaut sex manns til bana í þjónustumiðstöð í þýska bænum Stade í dag var þangað kominn til að ræða um forsjárdeilu.
Maðurinn átti í deilu við barnsmóður sína um forsjá þriggja mánaða gamallar dóttur þeirra. Mæðgurnar voru á staðnum þegar árásin var gerð í félagslegu úrræði fyrir ungar mæður og börn. Þau sem létust voru öll starfsmenn barnaverndar.
Árásarmaðurinn reyndi að flýja af vettvangi í bíl sem kona á sjötugsaldri ók. Hún er talin vera náin fjölskyldu hans. Maðurinn var þó handtekinn eftir stuttan eltingarleik við lögreglu.
Áður þekktur hjá lögreglu
Samkvæmt AFP-fréttastofunni er haft eftir Kathrin Schuol, lögreglustjóra í Lüneburg, sem sér um rannsóknina, að sá grunaði hafi áður verið þekktur hjá lögreglu, meðal annars fyrir að hafa haft í hótunum. Ekki var hann þó talinn sérstaklega ofbeldisfullur einstaklingur.
Hún bætti því við að hinn grunaði hefði ekki haft skotvopnaleyfi og óljóst væri hvernig hann varð sér úti um vopnið.
Lögreglan sagði manninn vera tyrkneskan ríkisborgara en fæddan í Þýskalandi.
Frank-Walter Steinmeier, forseti Þýskalands, vottaði fórnarlömbum árásarinnar í Stade samúð sína í yfirlýsingu í dag.
„Ég er djúpt sleginn yfir umfangi ofbeldisins á stað sem á að veita öryggi,“ sagði Steinmeier. „Hugur minn er hjá fjölskyldum þeirra sem hafa látist og þeirra sem hafa særst, sem þurfa að þola svo mikinn sársauka.“