Paul Watson samtökin segjast hafa strax orðið við beiðni Landhelgisgæslunnar um að senda tilkynningar um staðsetningu Bandero á klukkutíma fresti með tölvupósti. Síðar hafi þó komið í ljós að tilkynningarnar hefðu ekki borist vegna stafsetningarvillu.
Samtökin segja að tæknileg bilun hafi komið upp í sjálfvirku staðsetningarkerfi Bandero, skips samtakanna. Gæslan hefði sett sig í samband við það eftir að Bandero sigldi inn í íslenska efnahagslögsögu og beðið um að fá staðsetningu skipsins senda reglulega.
Í tilkynningu segir að við nánari athugun hafi komið í ljós að einn rangur stafur hefði verið sleginn inn í netfang Landhelgisgæslunnar þegar tilkynningar voru sendar. Hafa samtökin nú endursent allar fyrri tilkynningar með tímastimplum og fengið þær staðfestar af Landhelgisgæslunni.
Samtökin lýsa yfir áhyggjum af því að fréttir um að áhöfnin hefði óhlýðnast fyrirmælum hafi birst í íslenskum fjölmiðlum áður en þeim sjálfum var gert viðvart um atvikið. Þau telja það hafa skapað villandi umræðu.
Setja spurningarmerki við forgangsröðun Gæslunnar
Varðskipið Þór fylgist náið með ferðum skipsins sem sigldi inn í íslensku efnahagslögsöguna í fyrradag og fylgir því eftir.
Siglingin er hluti af herferð samtakanna, sem nefnist „Aðgerð 86“, og er ætlað að mótmæla langreyðaveiðum Hvals hf. á miðunum við Ísland.
Í tilkynningunni gagnrýna samtökin þá ákvörðun að senda eitt af fáum varðskipum landsins til að fylgjast með friðsamlegu mótmælaskipi.
„Það að helga takmörkuðum fjármunum til verndar viðskiptahagsmuna eins einkarekins hvalveiðifyrirtækis vekur áhyggjur af forgangsröðun, sérstaklega í ljósi mikilvægis þess að viðhalda fullnægjandi leitar- og björgunargetu fyrir alla sjómenn sem starfa á Íslandi.“
Samtökin árétta að „Aðgerð 86“ muni halda áfram og skipið stefni enn nær landi til að mótmæla hvalveiðunum.