Íbúar á Sléttunni í Fossvogi, einu Hrafnistuheimilanna, eru duglegir að hreyfa sig og gera alls konar æfingar, hvort sem það er í sal eða tækjasal. Þar stundar Guðmundur Einarsson líkamsrækt nokkrum sinnum í viku en hann er fæddur 25. desember 1924 og því 101 árs.
„Ég fer hérna á morgnana, ég fer í tækin og svo út að ganga þegar gott er veður. Þetta heldur mér í góðu formi en ég finn fyrir því að ég er orðinn eldri en ég reyni að gera eins og ég get að hreyfa mig því ég held að það sé mikið atriði að hreyfa sig,” segir Guðmundur.
Guðmundur segist vera alsæll á Sléttunni. Hann segir að þar líði íbúum mjög vel og þjónustan sé góð. Sjálfur er hann þar í dagvistun.
En hvernig er að vera orðinn 101 árs gamall?
„Já, það er nú bara ágætt í sjálfu sér,“ segir hann.
Guðmundur er Vesturbæingur. Hann er þar fæddur og uppalinn en á ættir að rekja í Sandvíkurhreppinn hinn forna sem tilheyrir nú Sveitarfélaginu Árborg. Þar var hann alltaf í sveit á sumrin.
En hver skyldi verða uppáhaldsmaturinn hans Guðmundar? Er það kannski maturinn sem gerir hann svona sprækan samhliða líkamsræktinni?
„Það er fiskur, sem er uppáhaldsmaturinn, sérstaklega bleikja. Annars er ég nú vanur öllum mat,” segir Guðmundur.
Og þú heldur áfram í líkamsræktinni?
„Já, ég geri það á hverjum morgni. Ég er hér fjóra daga í viku,” segir Guðmundur, 101 árs líkamsræktarkappi.