Fjárfestingarfélagið orðið eins og lítill lífeyrissjóður á Íslandi

Fjárfestingarfélagið orðið eins og lítill lífeyrissjóður á Íslandi

Fjárfestingarfélagið orðið eins og lítill lífeyrissjóður á Íslandi

Um miðjan júní var sagt frá því í fréttatilkynningu að Bláa lónið og ferðaþjónustufyrirtækið Arctic Adventures ætluðu sér að sameinast. Ef af þessum samruna verður verður til risastórt fyrirtæki á ferðaþjónustumarkaði. Samanlagður starfsmannafjöldi fyrirtækjanna tveggja er rúmlega 1100.

Bláa lónið er eitt þekktasta vörumerki Íslands í ferðaþjónustu og Arctic Adventures hefur um árabil verið eitt stærsta fyrirtæki landsins á sínu sviði. Arctic selur rútuferðir sem fara Gullna hringinn með ferðamenn, býður upp á snjósleða- og köfunarferðir, rekur hótel, Kerið í Grímsnesi og fjölmargt fleira. Í fréttatilkynningu um viðskiptin kom fram að samanlagðar tekjur þessara tveggja fyrirtækja væru 34,3 milljarðar króna.

Eitt af því sem vekur athygli við þessa fyrirhuguðu sameiningu Bláa lónsins og Arctic Adventures er að fjárfestingarfélagið Stoðir er einn stærsti hluthafi beggja þessara fyrirtækja. Stoðir eru langstærsti hluthafi Arctic Adventures með tæplega 42 prósenta hlut og fyrirtækið er þriðji stærsti hluthafi Bláa lónsins með 7,3 prósenta hlut. Fjárfestingarfélagið er með stjórnarmann í báðum þessum stóru fyrirtækjum. Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða, er stjórnarmaður í Bláa lóninu og Lárus Welding, rekstrarstjóri Stoða, er stjórnarmaður í Arctic Adventures.

Fjallað er um þennan fyrirhugaða samruna Bláa lónsins og Arctic Adventures og stærð fjárfestingarfélagsins Stoða í íslensku viðskiptalífi í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Þáttinn má hlusta á hér:

Snorri segir Stoðir í vera eins og lítinn lífeyrissjóð

Ef af þessari sameiningu verður mun fjárfestingarfélagið Stoðir því verða risastór hluthafi í hinu sameinaða fyrirtæki. Hversu stór liggur vitanlega ekki fyrir á þessu stigi.

Fjárfestingarfélagið Stoðir er nú stærsta fjárfestingarfélag landsins, segir fjármálagreinandinn Snorri Jakobsson sem rekur greiningarfyrirtækið Jakobsson Capital. Fjárfestingarfélagið SKEL, sem Jón Ásgeir Jóhannesson og tengdir aðilar fara fyrir, er þó ekki langt undan segir Snorri.

Um stærð Stoða segir hann:

„Fjárfestingareignir eru um 53 milljarðar. Ef við setjum þetta í eitthvað samhengi þá er SKEL fjárfestingarfélag svipað að stærð. Þó er einn munur á og hann er sá að SKEL fjárfestir fyrst og fremst í óskráðum eignum á meðan Stoðir eru meira í skráðum bréfum. Ef við lítum á lífeyrissjóðina þá eru Stoðir í dag eins og allra minnstu lífeyrissjóðir,“ segir Snorri.

Snorri segir að fjárfestingarfélagið sé það sem hann kallar áhrifafjárfesti því Stoðir hafi gjarnan mikil áhrif innan þeirra fyrirtækja sem þeir hluthafar í.

Stærsti einkafjárfestirinn í Kviku og Arion

Auk stórra hluta í Arctic Adventures, Bláa lóninu, Arion banka og Kviku eru Stoðir stærsti hluthafi Símans með nítján prósenta hlut. Meðfjárfestar Stoða í Símanum eru aðallega lífeyrissjóðir.

Auk þess standa Stoðir í stærstu einkafjárfestingu sem sést hefur í Íslandssögunni í Ölfusi á Suðurlandi þar sem fjárfestingarfélagið byggir upp landeldi á eldislaxi. Þessi fjárfesting kostar vel á annað hundrað milljarða króna og eru einungis fjárfestingar íslenska ríkisins í virkjunum stærri hingað til. Stoðir eru því risastórt fjárfestingarfélag.

Eigendur Stoða er stór hópur þekktra fjárfesta eins og Jóns Sigurðssonar, eiginkonu hans Bjargar Fenger, bróður hennar Ara Fenger, Magnúsar Ármanns, Örvars Kærnested, Einars Arnar Ólafssonar, Helga Magnússonar, Kára Guðjóns Hallgrímssonar, Guðbjargar Matthíasdóttur útgerðarkonu og fleiri.

Saga Stoða er að mörgu leyti áhugaverð. Fyrirtækið er með kennitölu frá árinu 1973 og var áður hluti af samstæðu Icelandair. Stoðir hétu áður FL Group og var fjárfestingararmur Icelandair sem var klofinn frá flugrekstrinum á árunum fyrir bankahrunið 2008. Þá stýrðu Hannes Smárason, Jón Ásgeir Jóhannesson og einnig Jón Sigurðsson, sem nú er forstjóri Stoða, félaginu.

FL Group var eitt stærsta fjárfestingarfélag Íslands og var hluthafi í fyrirtækjum eins og Íslandsbanka, sem skipti um nafn og var kallaður Glitnir, Tryggingamiðstöðinni, ýmsum fasteignafélögum, flugfélaginu EasyJet, hollenska drykkjarvöruframleiðandanum Refresco og stórum hlut í móðurfélagi bandaríska flugfélagsins American Airlines.

Stoðir var mjög skuldsett fyrirtæki og var yfirtekið af kröfuhöfum þess eftir bankahrunið árið 2008. Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða, var hins vegar forstjóri félagsins áfram og vann með kröfuhöfum fyrirtækisins. Árið 2017 keypti fjárfestingarfélagið S121 ehf. Stoðir af kröfuhöfum og hefur félagið vaxið mikið síðan.

Þó að Stoðir séu eignamikið fyrirtæki með tæplega 60 milljarða eignir þá er það aðeins lítill hluti af þeim skráðu eignum fyrirtækisins þegar félagið hét FL Group fyrir bankahrun. Þá voru eignirnar metnar á 450 til 600 milljarða króna.

Stoðir hafa gefið það út að félagið stefni að skráningu á hlutabréfamarkað með tíð og tíma. Nákvæm tímasetning liggur hins vegar ekki fyrir.

Sameining fyrirtækja sem eru að hluta til í eigu Stoða, eins og til dæmis Bláa lónsins og Arctic Adventures, hjálpar til við að auka verðmæti eigna fyrirtækisins.

Stjórnendur Bláa lónsins áttu frumkvæðið segir Sigríður

Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins, segir í skriflegu svari til fréttastofu þegar hún er spurð að því hver hafi átt frumkvæði að sameiningunni að það hafi verið stjórnendur Bláa lónsins. „Stjórnendur Bláa lónsins hf. áttu frumkvæði að þessum viðskiptum, þau eru fyrst og síðast góð fyrir Bláa lónið hf., enda eru þetta strategísk viðskipti í samræmi við þá stefnu sem félagið hefur markað. Það eru forréttindi að starfa hjá félagi sem hefur jafn skýra stefnu og Bláa lónið hf., félagið hefur bæði haft langtímasýn og hugrekki til þess að ráðast í fjárfestingar og uppbyggingu undanfarna áratugi sem staðsetja Ísland sem heilsu- og vellíðunarland. Ævintýraferðir, afþreying og uppbygging áfangastaða sem eru ólíkir öllu öðru er mikilvægur hluti af þeirri framtíðarsýn.“   

Þessi sameining er aðeins hluti af stækkun og vexti Bláa lónsins og stendur fyrirtækið meðal annars fyrir stórfelldri uppbyggingu baðlóns og hótels í Þjórsárdal, eins og rætt hefur verið um í fréttum.

Sigríður Margrét segir í svörum sínum til fréttastofu að til standi að skrá Bláa lónið á hlutabréfamarkað síðar á þessu ári en að nákvæm tímasetning liggi ekki fyrir.

#eins #fjárfestingarfélagið #lífeyrissjóður #lítill #orðið


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-06-30-fjarfestingarfelagid-ordid-eins-og-litill-lifeyrissjodur-a-islandi-479807

📰 Aðrar fréttir

Fann ástina og tók sénsinn í New York - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Fann ástina og tók sénsinn í New York - Vísir
Klara Sól stofnaði fyrirtækið The Liminal Society og ætlar sér stóra hluti í lífinu. Hún er gift fyrirsætunni og meistaranemanum Chris Petersen og þau...
Comparing Coastlines: Why chasing the sun past Gibraltar offers a completely different holiday vibe
📅 30.06.2026 👁️ 0
Comparing Coastlines: Why chasing the sun past Gibraltar offers a completely different holiday vibe
If you’re choosing between a holiday on Spain’s Atlantic coast and one further round in the Mediterranean, it helps to know they’re not really interch...
Reiðin magnast í Venesúela - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Reiðin magnast í Venesúela - Vísir
Breska ríkisútvarpið ræðir við fjölda Venesúelabúa sem bíða ýmist fregna eða taka þátt í leit af ástvinum sínum sem liggja enn undir rústum bygginga o...
Með kylfur og mikið magn vímu­efna - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Með kylfur og mikið magn vímu­efna - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglu. Þar kemur fram að lögreglu hafi einnig borist tilkynning um þjófnað úr matvöruverslun á stöð 1 s...
Wimbledon 2026: Serena Williams on Maya Joint match and return to tennis
📅 30.06.2026 👁️ 0
Wimbledon 2026: Serena Williams on Maya Joint match and return to tennis
For Serena Williams, everything and nothing has changed on her return to Wimbledon.
Sex látnir eftir skotárás í Þýskalandi – Maður af tyrkneskum uppruna handtekinn
📅 30.06.2026 👁️ 0
Sex látnir eftir skotárás í Þýskalandi – Maður af tyrkneskum uppruna handtekinn
Sex manns létust í skotárás í bænum Stade í norðurhluta Þýskalands á mánudag. Fimm létust á vettvangi en sjötti einstaklingurinn lést síðar á sjúkrahú...
Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson - Vísir
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag þar sem rætt er við Kristján. Líkt og kunnugt er er skip Paul Watson, Bandero, nú í íslenskri efnahagslögsögu o...
TUESDAY WEATHER: Canary Islands face warnings for 40°C heat, calima and some strong winds
📅 30.06.2026 👁️ 0
TUESDAY WEATHER: Canary Islands face warnings for 40°C heat, calima and some strong winds
The Canary Islands are set for another day of intense summer weather today, Tuesday, with temperatures forecast to climb to 40°C in some areas, accomp...
„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum
📅 30.06.2026 👁️ 1
„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum
„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum Nátt­úru­fræði­stofn­un tel­ur drög um­hverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­...
Rúmlega 400 drónum grandað yfir Rússlandi í nótt
📅 30.06.2026 👁️ 0
Rúmlega 400 drónum grandað yfir Rússlandi í nótt
Rússar skutu niður 419 úkraínska dróna í nótt. Frá þessu greinir rússneska varnarmálaráðuneytið.Aukinn kraftur hefur færst í árásir Úkraínumanna með l...
Fær ekki að reka Cook úr bankaráði seðlabankans
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fær ekki að reka Cook úr bankaráði seðlabankans
Hæstiréttur Bandaríkjanna neitaði með fimm atkvæðum gegn fjórum að leyfa Donald Trump að reka Lisu Cook úr bankaráði bandaríska seðlabankans. Hæstirét...
Pupil put in isolation booth for more than half a school year, BBC learns
📅 30.06.2026 👁️ 2
Pupil put in isolation booth for more than half a school year, BBC learns
The pupil's experience in a Yorkshire school highlights concerns about zero-tolerance behaviour policies.
Angry citizens accuse Venezuelan government of negligence
📅 30.06.2026 👁️ 1
Angry citizens accuse Venezuelan government of negligence
People in areas devastated by twin earthquakes say they need more support from the government.
Kínverskur milljarðamæringur dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum
📅 30.06.2026 👁️ 1
Kínverskur milljarðamæringur dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum
Kínverski milljarðamæringurinn Guo Wengui var í gær dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum. Í júlí 2024 var hann sakfelldur fyrir fjársvik, fjárkúgu...
World Cup 2026: Julian Nagelsmann faces pressure as Germany bow out
📅 30.06.2026 👁️ 0
World Cup 2026: Julian Nagelsmann faces pressure as Germany bow out
Germany make a shock last-32 exit against Paraguay, losing a World Cup penalty shootout for the first time to pile pressure on boss Julian Nagelsmann.
Úkraínskur ólígarki á meðal særðra eftir sprengingu í Mónakó
📅 30.06.2026 👁️ 1
Úkraínskur ólígarki á meðal særðra eftir sprengingu í Mónakó
Þrír særðust, þar á meðal táningur, eftir að sprengja sprakk í íbúðarhúsnæði í Mónakó í kvöld.Heimildarmaður AFP segir einn hinna særðu vera Vadym Yer...
Særún sigldi aukaferð til að fylla á vatnsbirgðir í Flatey
📅 30.06.2026 👁️ 2
Særún sigldi aukaferð til að fylla á vatnsbirgðir í Flatey
Ferjan Særún sigldi aukaferð til Flateyjar á Breiðafirði í kvöld til að flytja vatn til eyjarinnar. Breiðafjarðarferjan Baldur hefur sinnt vatnsflutni...
Hæsti­réttur Banda­ríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Hæsti­réttur Banda­ríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps - Vísir
Árið 2023 var Trump gert að greiða Caroll fimm milljónir bandaríkjadala, sem samsvarar um 650 milljónum íslenskra króna, í skaðabætur. Áfrýjunardómstó...
Stefna konu í Ástralíu vegna vangoldins námsláns upp á 21 milljón
📅 29.06.2026 👁️ 1
Stefna konu í Ástralíu vegna vangoldins námsláns upp á 21 milljón
Menntasjóður námsmanna hefur stefnt konu á fertugsaldri vegna gjaldfalinnar skuldar upp á meira en 21 milljón króna. Konan tók lánið árið 2009, lauk n...
Chris Mason: Burnham revels on public stage but has little time to hammer ideas into shape
📅 29.06.2026 👁️ 1
Chris Mason: Burnham revels on public stage but has little time to hammer ideas into shape
As a man who has held prime ministerial ambitions for years, Andy Burnham makes his dash for the door, political editor Chris Mason writes.
Segir ekki til­efni til að endur­skoða lyfjaakstursmál síðustu ára - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Segir ekki til­efni til að endur­skoða lyfjaakstursmál síðustu ára - Vísir
Vilhjálmur Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður skoraði á ríkissaksóknara að endurskoða öll lögreglumál sem varða lyfjaakstur frá því að ný umferðarlög tó...
Vonar að samningurinn verði lóð á vogarskálarnar í friði í Palestínu
📅 29.06.2026 👁️ 1
Vonar að samningurinn verði lóð á vogarskálarnar í friði í Palestínu
Mohammed Al-Amour efnahagsráðherra sótti ráðherrafund EFTA-ríkjanna hér á landi til að skrifa undir uppfærslu á landbúnaðarhluta fríverslunarsamnings ...
Homes harder to sell as high mortgage rates frustrate buyers
📅 29.06.2026 👁️ 1
Homes harder to sell as high mortgage rates frustrate buyers
Three in five homes listed for sale since January remain on the market, says property portal Zoopla.
Vig­dís kíkti í kaffi til Krist­rúnar - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Vig­dís kíkti í kaffi til Krist­rúnar - Vísir
Kristrún deilir færslu um heimsóknina ásamt mynd af þeim tveimur meðal annars á Instagram-síðu sinni. Hún segir þær hafa farið um víðan völl yfir kaff...
Another UK heatwave could be on the way
📅 29.06.2026 👁️ 1
Another UK heatwave could be on the way
As parts of Europe continue to swelter in record temperatures, higher temperatures could develop again across the UK later this week, as Simon King ex...
'We can't continue like this': Inquiry demands NHS maternity overhaul
📅 29.06.2026 👁️ 1
'We can't continue like this': Inquiry demands NHS maternity overhaul
An independent inquiry into England's maternity services has found "unacceptable racism and discrimination" is affecting patient safety.
Dánarorsök barnastjörnunnar afhjúpuð og aðstandendur vara við fjáröflun kærastans
📅 29.06.2026 👁️ 1
Dánarorsök barnastjörnunnar afhjúpuð og aðstandendur vara við fjáröflun kærastans
Leikkonan Daveigh Chase lést fyrir viku síðan, en hún var hvað þekktust fyrir að vera rödd Lilo í teiknimyndinni Lilo & Stitch og fyrir hryllingsmyndi...
Árásarmaðurinn í Stade á staðnum vegna forsjárdeilu
📅 29.06.2026 👁️ 1
Árásarmaðurinn í Stade á staðnum vegna forsjárdeilu
Árásarmaður sem skaut sex manns til bana í þjónustumiðstöð í þýska bænum Stade í dag var þangað kominn til að ræða um forsjárdeilu.Maðurinn átti í dei...
101 árs og mætir fjórum sinnum í viku í ræktina
📅 29.06.2026 👁️ 1
101 árs og mætir fjórum sinnum í viku í ræktina
Íbúar á Sléttunni í Fossvogi, einu Hrafnistuheimilanna, eru duglegir að hreyfa sig og gera alls konar æfingar, hvort sem það er í sal eða tækjasal. Þa...
Monaco explosion injures three people, French media report
📅 29.06.2026 👁️ 1
Monaco explosion injures three people, French media report
The blast at a residential building was "very likely an attack", Monaco's head of government tells AFP.
Vara­maður á Ísa­firði verður sveitar­stjóri Súðavíkur - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Vara­maður á Ísa­firði verður sveitar­stjóri Súðavíkur - Vísir
Greint er frá ráðningunni á heimasíðu Súðavíkurhrepps og segir þar að undanfarin ár hafi Elísabet starfað sem fjármála- og skrifstofustjóri hjá Fiskvi...
Kenna stafsetningarvillu um samskiptaleysi við Landhelgisgæsluna
📅 29.06.2026 👁️ 1
Kenna stafsetningarvillu um samskiptaleysi við Landhelgisgæsluna
Paul Watson samtökin segjast hafa strax orðið við beiðni Landhelgisgæslunnar um að senda tilkynningar um staðsetningu Bandero á klukkutíma fresti með ...
Gólfhiti í nýjum húsum skapar kjöraðstæður fyrir silfurskottur til að fjölga sér
📅 29.06.2026 👁️ 1
Gólfhiti í nýjum húsum skapar kjöraðstæður fyrir silfurskottur til að fjölga sér
Gólfhiti í nýjum húsum virðist skapa kjöraðstæður fyrir silfurskottur til að fjölga sér, segir meindýraeyðir.„Fólk er alltaf jafnsvekkt þegar það hrin...
Domestic murder sentence could see 10-year sentence increase
📅 29.06.2026 👁️ 1
Domestic murder sentence could see 10-year sentence increase
The changes mean the 15-year starting sentence could be increased to 25 years to be in line with other murders.
Refugees will be told to repay £10,000 under new asylum rules
📅 29.06.2026 👁️ 1
Refugees will be told to repay £10,000 under new asylum rules
Ministers will be given powers to recover costs from adults who have received asylum support under new laws.
Long-delayed defence investment plan to be published on Tuesday
📅 29.06.2026 👁️ 1
Long-delayed defence investment plan to be published on Tuesday
The defence investment plan will set out how billions will be spent on equipping the UK Armed Forces.
Long-delayed defence investment plan to be published
📅 29.06.2026 👁️ 1
Long-delayed defence investment plan to be published
The defence investment plan will set out how billions will be spent on equipping the UK Armed Forces.
Orðinn Há­skóli Ís­lands á Hólum - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Orðinn Há­skóli Ís­lands á Hólum - Vísir
Í byrjun júní samþykkti Alþingi frumvarp um háskólasamstæður, lög sem öðlast gildi þann 1. júlí. Háskóli Íslands verður þannig að samstæðuháskóla og f...
Wimbledon 2026 resuts: Naomi Osaka dazzles in kimono outfit before opening victory
📅 29.06.2026 👁️ 1
Wimbledon 2026 resuts: Naomi Osaka dazzles in kimono outfit before opening victory
Naomi Osaka has long been renowned for dazzling crowds with her on-court outfits - but making that compatible with Wimbledon's all-white dress code re...
Lést af völdum al­næmis - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Lést af völdum al­næmis - Vísir
Daveigh Chase lést fyrr í þessum mánuði og að sögn umboðsmanns hennar hafði hún látist af völdum blóðsýkingar í kjölfar heilahimnubólgu. Hins vegar ha...
Gagn­rýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Gagn­rýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá - Vísir
Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar, hefur fylgt skipinu Bandero, sem er í eigu Paul Watson-samtakanna, eftir síðan í gærkvöldi innan íslenskrar lögsögu...
Al­þjóð­legi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmti­legt“ - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Al­þjóð­legi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmti­legt“ - Vísir
Af hverju eruði að drullumalla í dag? „Af því það er drullumallsdagurinn í dag,“ sagði ein á leikskólanum Hofi. Hárrétt. Alþjóðlegi drullumallsdagurin...
Svarthöfði skrifar: Útibú Sjálfstæðisflokksins gefur út smásögu
📅 29.06.2026 👁️ 1
Svarthöfði skrifar: Útibú Sjálfstæðisflokksins gefur út smásögu
Út er komin ný smásaga Viðskiptaráðs um hrakfarir ríkisstjórnarinnar á liðnum þingvetri. Svarthöfða virðist talsmaður útgáfunnar einkar vel fallinn ti...
Kannabisræktunin í Reykholti hluti af stærri rannsókn
📅 29.06.2026 👁️ 1
Kannabisræktunin í Reykholti hluti af stærri rannsókn
Lögreglu grunar að þeir sem voru að baki kannabisræktun í Reykholti hafi staðið að tveimur öðrum slíkum ræktunum sem voru stöðvaðar á suðvesturhorninu...
Fjar­lægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Fjar­lægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás - Vísir
Gabriel Garland, 24 ára keppandi í Love Island, var fjarlægður úr nýjustu þáttaröð raunveruleikaþátta sjónvarpsstöðvarinnar ITV en hann kom fram í þæt...
One big win and three defeats for Trump in dramatic day at Supreme Court
📅 29.06.2026 👁️ 0
One big win and three defeats for Trump in dramatic day at Supreme Court
While Trump celebrated a ruling expanding presidential power to remove and replace regulators, other decisions were major setbacks.
Daveigh Chase, The Ring and Lilo & Stitch star, died of Aids
📅 29.06.2026 👁️ 1
Daveigh Chase, The Ring and Lilo & Stitch star, died of Aids
Substance abuse was listed as another significant condition the former child star was experiencing.
Lilo & Stitch star Daveigh Chase's cause of death was Aids
📅 29.06.2026 👁️ 1
Lilo & Stitch star Daveigh Chase's cause of death was Aids
The actress, who also crawled out of a TV in horror film The Ring, passed away in LA this month, aged 35.
Erfitt að ímynda sér eyðilegginguna í Venesúela
📅 29.06.2026 👁️ 1
Erfitt að ímynda sér eyðilegginguna í Venesúela
Helen Hafgnýr Cova, rithöfundur og útgefandi, kom hingað til lands frá Venesúela árið 2016. Hún segir að erfitt hafi verið að ná í ættingja og vini þa...
„Þetta eru pjöllu-klútar“ - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
„Þetta eru pjöllu-klútar“ - Vísir
Það var líf og fjör á Þingvöllum og gestir í miklum gír. Gugga spurði þá að ýmsum spurningum, þar á meðal hvort þeir gætu nefnt aðra meðlimi Kaleo á n...