Þrír særðust, þar á meðal táningur, eftir að sprengja sprakk í íbúðarhúsnæði í Mónakó í kvöld.
Heimildarmaður AFP segir einn hinna særðu vera Vadym Yermolaiev sem er úkraínskur óligarki. Stjórnvöld í Kænugarði hafa beitt hann refsiaðgerðum frá því í desember 2023. Ástæðan er sögð vera fyrirtækjarekstur Yermolaievs á Krímskaga.
Cristophe Mirmand, ríkisráðherra Mónakó, sagði fyrst við AFP að um árás hefði verið að ræða. Hann dró orð sín síðar til baka og talaði um að ásetningur hefði búið að baki sprengingunni.
Albert II fursti segir árásina svívirðilegan glæp og áfall fyrir samfélagið allt í Mónakó.
Yfirvöld segja par á sextugs- og sjötugsaldri vera í lífshættu eftir sprenginguna. 13 ára táningur særðist í árásinni en hlaut ekki jafn alvarlega áverka.
Lögreglan í Mónakó leitar nú tilræðismannsins.