Ferjan Særún sigldi aukaferð til Flateyjar á Breiðafirði í kvöld til að flytja vatn til eyjarinnar. Breiðafjarðarferjan Baldur hefur sinnt vatnsflutningum út í Flatey á siglingum sínum en hann var færður til í byrjun mánaðar til að sinna auknu álagi við flutninga milli lands og Vestmannaeyja. Íbúar á Norðvesturlandi hafa gagnrýnt tilfærslu Baldurs en útlit er fyrir að hann snúi ekki aftur til Breiðafjarðar fyrr en seint í júlí.
„Við erum að fara núna með 19 tonn af vatni til að rétta af vatnsbúskapinn, það gengur á hann rólega. Við förum með sex tonn alla daga en svo förum við með tólf tonn föstudaga og sunnudaga því þá förum við tvær ferðir,“ segir Siggeir Pétursson, skipstjóri á Særúnu, í samtali við fréttastofu þegar hann var að ljúka við að dæla vatninu af skipinu rétt upp úr miðnætti.
Til samanburðar hefur Baldur, sem er öllu stærra skip en Særún, flutt allt að 20 tonn af vatni daglega til Flateyjar. Siggeir telur að hægt sé að sinna vatnsþörf í Flatey með um einni aukaferð Særúnar í viku.
Hann segir að þegar umferð fólks út í eyna eykst á sumrin þá aukist vatnsneyslan. „Og svo eru allir búnir að gleyma því þegar það átti bara að sturta niður þegar það var númer tvö en ekki númer eitt. Þannig að það fer svona hraðar af því,“ segir Siggeir Pétursson skipstjóri Særúnar.