Ánægja leigjenda Félagsbústaða hefur aldrei mælst meiri samkvæmt niðurstöðu þjónustukönnunar fyrir árið 2026. Segjast yfir 86% leigjenda vera mjög eða frekar ánægð með að leigja hjá félaginu. Segir í tilkynningu frá Félagsbústöðum að ánægja leigjenda hjá félaginu hafi aukist jafnt og þétt undanfarin ár.
Ánægja leigjenda Félagsbústaða aldrei mælst meiri