Innviðaráðuneytið vinnur að lokaútfærslu reglugerðar um vanhæfnismörk vegna aksturs með töku lyfseðilsskyldra lyfja. Drög að reglugerðinni voru sett í samráðsgátt í vor og rann umsagnarfrestur út 6. júní.
Í drögunum eru vanhæfismörk miðuð við því sem samsvarar 0,5‰ vínanda og þar er tiltekið hámarksgildi ýmissa lyfja í blóði ökumanns. Reglugerðin á aðeins að taka til lyfja sem tekin eru í samræmi við tilvísun læknis.
Vill láta endurskoða mál
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður skoraði í morgun á ríkissaksóknara að endurskoða öll mál síðustu sex og hálft ár (frá gildistöku umferðarlaga) þar sem ökumaður taldist óhæfur til að aksturs vegna neyslu lyfja.
Landsréttur sýknaði mann í síðustu viku af ákæru um að hafa brotið umferðarlög vegna aksturs undir áhrifum lyfja.
Ríkissaksóknari hefur ekki enn svararð fyrirspurn fréttastofu um hvort til standi að verða við áskorun Vilhjálms.
Ráðherra vill eyða óvissunni
Í svari innviðaráðuneytisins segir að Eyjólfur Ármannsson ráðherra hafi lagt mikla áherslu á að setja reglugerð til að eyða óvissu um málið.
Nú sé verið að vinna úr umsögnum við drögin og reglugerðin ætti að líta dagsins ljós fljótlega eftir að þeirri vinnu lýkur.
Þrjár umsagnir bárust vegna málsins.
ADHD-samtökin fagna því að reglugerðin sé í vinnslu en segja drögin „heldur rýr“. Þar sé til dæmis ekki getið nokkurra algengra ADHD-lyfja. Það geti valdið því að fólk á ávísuðum lyfjum verði sakað um akstur undir áhrifum.
Þá sé nauðsynlegt að breyta umferðarlögum þar sem sönnunarbyrði verði færð frá ökumanni á lögreglu.
Lyfjafræðingafélag Íslands styður tillögu ráðherra um setningu reglugerðarinnar. Hún sé „mikilvægt framfaraskref sem getur stuðlað að auknu umferðaröryggi“.
Lyfjastofnun gerir ekki athugasemd við inntak reglugerðarinnar en vill láta bæta inn fimm lyfjum:
- Fentanyl
- Remifentanil
- Sufentanil
- Opium
- Tramadol