Ræðst gegn „kommúnistum“ og planar golfvöll
Donald Trump Bandaríkjaforseti berst gegn uppgangi vinstri sinnaðra stjórnmálamanna sem kenna sig við lýðræðislegan sósíalisma. Og leggur drög að breyttum golfvelli.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, réðst í gær gegn líklegum næsta borgarstjóra Washington og kallaði hana kommúnista sem myndi eyðileggja höfuðborgina. Á sama tíma kynnti hann stórfenglegar byggingaráætlanir, þar á meðal endurbætur á golfvelli.
Trump sagði í færslu á Truth Social að hann myndi á morgun funda með Janeese Lewis George, sem sigraði í forvali Demókrataflokksins, sem tryggir nánast að hún muni sigra í kosningunum í nóvember í þessari borg þar sem demókratar eru í miklum meirihluta.
En Trump varaði við því að hann myndi ekki leyfa að Washington, sem hann sagðist hafa gert að „öruggu og virtu samfélagi“ á ný með því að senda þangað þjóðvarðliða, „yrði eyðilögð af kommúnista“.
Trump hefur nýlega aukið notkun sína á orðinu „kommúnisti“ til að lýsa pólitískum andstæðingum, meðal annars með því að kalla þrjá sigurvegara í forvali demókrata í New York í síðustu viku, sem studdir voru af vinstrisinnaða borgarstjóranum Zohran Mamdani, „guðlausa …