Göngumaðurinn féll í brekku á leið sinni frá Landamannalaugum yfir í Hrafntinnusker á laugardag. Hann slasaðist á öxl en náði að koma sér af eigin rammleik í skála í Hrafntinnuskeri, að því er segir í tilkynningu frá Landsbjörg.
Þar sem maðurinn gat ekki haldið för sinni áfram var björgunarsveitin Súlur sem sinni hálendisvakt í Landmannalaugum kölluð til aðstoðar. Þyrla Landhelgisgæslunnar var ekki langt undan en gat ekki lent í Hrafntinnuskeri vegna þokuveðurs.
Björgunarsveitarfólk fór á bílum og sótti manninn. Flutti það hann til móts við sjúkrabíl sem kom eftir honum frá Hvolsvelli.
Talsverður snjór er enn á leiðinni sem liggur í um 1.100 metra hæð. Segir Landsbjörg aðstæðurnar með erfðara móti þar sem mikill snjór og bleyta geti reynst göngufólki erfiður farartálmi.