„Farðu til helvítis Pólverja djöfull“

„Farðu til helvítis Pólverja djöfull,“ segir í færslu sem Sigursteinn Sigurðsson skrifaði á persónulega Facebook-síðu Pawel Bartoszek, stærðfræðings og alþingismanns fyrir Viðreisn. Athugasemdirnar eru margar sem erfitt er að hafa eftir vegna þess hversu gróf ummælin eru en þau hafa skiljanlega vakið upp undrun margra.
Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason spyr í opinberri færslu: „Hvað gengur að fólki sem setur svona óþverra á netið? Eru þetta raunverulegar persónur eða gerviprófílar?“
Vísar þá Egill í færslu sem Sveinn Waage ráðgjafi tók saman. Í færslunni má lesa sjokkerandi athugasemdir í garð Pawels og spyr Sveinn hversu heillandi það sé að tilheyra þessum hópi fólks?
„Sven kynnir með stolti: "Skóli lífsins" Glöggir landar mínir sjá að Nei-klanið er óhaggandi í sinni visku og gæsku og hér verður aldrei gerð tilraun til að snúa þeim. En þið sem eruð að hugsa málið þá legg ég hér inn sýnishorn frá FB síðu Pawel Bartoszek. Hans eigin. - spurðu þig svo hversu heillandi það er að tilheyra þessum hópi fólks.. og hvort það sé kannski ástæða að velta fyrir sér hvort hér sé hugsanlega ágæt ástæða ein og sér til afþakka boð í það partý.“
Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og fyrrum alþingismaður, tekur í sama streng og segir hreinlega að þetta sé hreinræktaður viðbjóður. „Hvað býr innra með fólki sem talar með þessum hætti?“
Áberandi er að sjá hvað vantar mikið upp á íslenskukunnáttu margra þeirra sem skrifa þessar athugasemdir. Þá nefnir Ragnheiður Gestsdóttir hversu „sérkennilegt það er hversu margir „sannir Íslendingar“ eru veikir á svellinu þegar kemur að móðurmálinu.“
Sigmar Guðmundsson samflokksmaður Pawels er undrandi á því hversu rólegur Pawel er yfir þessu, „lygilegt hvað fólk segir um Pawel á síðunni hans. Enn lygilegra hvað hann tekur því með mikilli ró.
Hér má sjá nokkrar af þessum athugasemdum sem um ræðir.