Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var gestur í hlaðvarpinu Ein Pæling, sem Þórarinn Hjartarson stýrir. Þar segir Diljá að íslenskt samfélag eigi ekki að samþykkja tákn sem hún telur endurspegla kerfisbundna kúgun kvenna.
Í þættinum rifjaði hún upp minningu úr æsku þegar hún var í fríi erlendis með fjölskyldu sinni.
„Ég man eftir mér, svo lítilli, að vera með fjölskyldunni minni erlendis í fríi, í steikjandi hita, og fylgjast með karlmönnum frá Miðausturlöndum svamla í sundlauginni á sundskýlunum, en konunum í þessum hræðilegu kuflum standandi við laugina og reyna að vera í skugga. Og allt niður í litlar stelpur. Þetta er viðurstyggilegt,“ sagði hún.
Segir um misskilning að ræða
Diljá hafnaði því að andstaða við slíkan klæðnað stangist á við stuðning við kvenréttindi eða tjáningarfrelsi.
„Þeir sem halda því fram að þetta sé eitthvað frjálst form af tjáningu og að maður sé í mótsögn við sjálfan sig ef maður talar fyrir kvenréttindum eða tjáningarfrelsi en vilji banna fólki hvernig það klæðir sig, þetta er einhver grundvallarmisskilningur á því hvernig konur hafa það í þessum heimshlutum,“ sagði hún.
Kallar eftir skýrum reglum
Að sögn Diljár sé staða kvenna í þessum samfélögum ekki tilfallandi, því allsstaðar séu skemmd epli, heldur sé hún samofin menningu, trúarbrögðum og jafnvel löggjöf.
„Að ætla að taka síðan við hópi fólks frá þessum heimshlutum og setja þeim ekki skýrar reglur og ramma varðandi það hvað líðst í okkar samfélagi, það finnst mér bara vera sjálfseyðandi stefna,“ sagði hún.