Fjórir fyrrverandi og núverandi lögreglustjórar eru meðal sex umsækjenda um starf lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Á listanum eru bæði fyrrverandi lögreglustjórinn á Suðurnesjum, Úlfar Lúðvíksson, og settur lögreglustjóri á Suðurnesjum, Margrét Kristín Pálsdóttir.
Úr röðum lögreglustjóra sóttu einnig um starfið María Káradóttir, settur lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, og Birgir Jónasson, lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra.
Þá sóttu einnig um starfið Vera Dögg Guðmundsdóttir, nefndarmaður í Kærunefnd útlendingamála, og Serhii Duiko, sjúkraliði á Grund.
Listinn var birtur á vef Stjórnarráðsins:
- Birgir Jónasson, lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra
- Margrét Kristín Pálsdóttir, settur lögreglustjóri á Suðurnesjum
- María Káradóttir, settur lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu
- Serhii Duiko, sjúkraliði á Grund
- Úlfar Lúðvíksson, fyrrv. lögreglustjóri á Suðurnesjum
- Vera Dögg Guðmundsdóttir, nefndarmaður KNÚ