Nokkrar árásir á báða bóga hafa verið gerðar á svæðinu um helgina og hafa þjóðirnar sakað hvor aðra um að hafa brotið skilmála friðarsamkomulagsins sem undirritað var á dögunum. Ráðist var á flutningaskip á sundinu á fimmtudaginn og Bandaríkjamenn gerðu um helgina nokkrar árásir á Íran í kjölfarið.
Þá hafa einnig verið átök í Líbanon þrátt fyrir að friðarsamkomulag hafi verið undirritað þar á föstudaginn.
Íranir svöruðu svo með árásum á herstöðvar í Kúvæt og Barein en nú vonast menn til þess að ró færist yfir á ný. Olíuverð hækkaði þó á mörkuðum í Asíu þegar þeir opnuðu í nótt og er ljóst að fjárfestar hafa áhyggjur af því að vopnahléið skili ekki árangri og að olíuflutningar um sundið gangi enn of hægt.