Falin fjölskylduperla komin á markað

Einbýlishúsið að Kirkjuvogi 11 í Reykjanesbæ hefur verið sett á sölu. Um er að ræða vel við haldið fjölskylduhús sem reist var árið 1928 og er auglýst á 72,5 milljónir króna.
Samkvæmt fasteignaskrá er húsið 172,3 fermetrar að stærð. Þar af er íbúðarhlutinn 123,4 fermetrar og bílskúr 48,9 fermetrar. Auk þess fylgir eigninni um 45 fermetra óskráður kjallari sem nýtist meðal annars sem herbergi, geymsla og þvottaaðstaða.
Húsið stendur á 375 fermetra eignarlóð með malbikaðri innkeyrslu og afgirtum garði. Frá eigninni er fallegt útsýni og við húsið er stór suðurpallur með skjólgirðingu og lýsingu sem tengist baklóðinni.
Á neðri hæð eru forstofa, gangur með útgengi á pall, eldhús með góðu skápaplássi, samliggjandi stofa og borðstofa auk nýuppgerðs baðherbergis með gólfhita og upphengdu salerni. Rýmin í stofu og borðstofu hafa verið opnuð upp frá upprunalegu skipulagi sem skapar rúmgott alrými.
Á efri hæð er sjónvarpshol og þrjú svefnherbergi. Eitt herbergjanna er með útgengi á rúmgóðar svalir þar sem nýtur einstaks útsýnis. Í kjallaranum er baðherbergi með þvottaaðstöðu, geymsla og herbergi með fataskáp.
Bílskúrinn er rúmgóður og búinn bæði heitu og köldu vatni. Þaðan er einnig útgengt út í bakgarð. Samkvæmt upplýsingum í söluyfirliti hafa gluggar verið endurnýjaðir að hluta, ljósleiðari er tengdur við húsið og bæði húsið og bílskúrinn eru með pottofna. Þá kemur fram að eldri ofnar séu enn á gangi og í hluta svefnherbergja.
Eignin hentar vel fjölskyldum sem leita að sjarmerandi eldra húsi með rúmgóðu skipulagi, stórri útiaðstöðu og góðu útsýni í grónu hverfi Reykjanesbæjar.