Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður skorar á ríkissaksóknara að endurskoða öll mál á sex og hálfs árs tímabili þar sem ökumaður taldist óhæfur til að stjórna ökutæki vegna neyslu lyfja.
Þetta segir Vilhjálmur í aðsendri grein á Vísi.
Ástæðan er dómur sem Landsréttur kvað upp í síðustu viku. Þar var maður sýknaður af ákæru um að hafa brotið umferðarlög vegna aksturs undir áhrifum lyfja. Hann hafði fengið óxýkódon uppskrifað hjá lækni og mat Rannsóknarstofa Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði að hann væri óhæfur til að stjórna ökutæki. Maðurinn var sakfelldur í héraði en sýknaður í Landsrétti.
Umferðarlög tóku gildi í ársbyrjun 2020 en frá þeim tíma hefur enginn ráðherra tilgreint í reglugerð hvar vanhæfismörkin liggja, hvenær ökumaður teljist óhæfur til að stjórna ökutæki. Því telur Vilhjálmur að endurskoða verði öll slík mál frá 1. janúar 2020, hvort sem þeim lauk með lögreglusátt eða dómi.