Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir að minnst 1.300 dauðsföll megi rekja til hitabylgjunnar sem gengið hefur yfir Evrópu síðan 21. júní. Hitamet féllu víða í álfunni í gær, þar á meðal í Þýskalandi, Póllandi og Tékklandi, mörg hver aðeins dagsgömul.
Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO), segir í færslu á samfélagsmiðlum að hiti væri „þögull morðingi“ og að heimili, skólar og vinnustaðir í Evrópu væru ekki byggð fyrir þær hitatölur sem mælst hafa.
Á sunnudagsmorgun greindu frönsk yfirvöld frá því að í landinu hefðu verið skráð þúsund umframdauðsföll síðan á miðvikudag. Flest væru meðal 65 ára og eldri og 40% aukning hefði verið á tilfellum þar sem fólk lést heima hjá sér.
„Evrópa er sú heimsálfa sem hlýnar hraðast á jörðinni, tvöfalt hraðar en heimsmeðaltalið,“ sagði Tedros í færslu sinni.
Hitamet voru slegin með 41,7 stiga hita bæði í Þýskalandi og Póllandi í gær, sunnudag. Hitamet hafði verið slegið í þessum löndum á laugardag, og einnig á föstudag í Þýskalandi. Í Tékklandi mældist 41,1 stiga hiti norður af höfuðborginni Prag.