Einn var fluttur til skoðunar á slysadeild eftir árekstur við Gullinbrú í Reykjavík í kvöld. Þrír bílar urðu fyrir tjóni í árekstrinum að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu.
Tilkynning um slysið barst á tíunda tímanum í kvöld.
Þá var einn dælubíll frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu sendur í Vesturbæinn í Reykjavík eftir tilkynningu frá vegfaranda sem heyrði í reykskynjara og fann brunalykt. Í ljós kom að um eldamennsku var að ræða.