Stjórnvöld í Íran og Bandaríkjunum hafa samþykkt að stöðva árásir sínar og halda viðræðum um deilu ríkjanna um Hormússund áfram. Þetta segir embættismaður innan úr bandaríska stjórnkerfinu í samtali við Reuters. Óttast hefur verið um afdrif viljayfirlýsingar ríkjanna um friðarsamkomulag eftir að þau skiptust á árásum á síðustu dögum.
Axios, sem greindi fyrst frá hléi árása, hefur eftir háttsettum bandarískum embættismanni að viðræður verði haldnar í Katar á þriðjudag. Upphaflega stóð til að fulltrúar ríkjanna myndu hittast í Sviss á þriðjudag til að ræða um kjarnorkuáætlun Írana. Eftir árásir síðustu daga var ákveðið að leggja áherslu á Hormússund í viðræðunum og þær færðar.
Ríkin tvö lögðu ólíkan skilning í skilmála viljayfirlýsingarinnar sem var undirrituð 17. júní. Íranar vildu meina að samkvæmt yfirlýsingunni hefðu þeir völd yfir skipaflutningum um Hormússund. Þarlend stjórnvöld vöruðu sæfarendur við því að sigla um sundið án leyfis.
Bandarísk stjórnvöld litu málið öðrum augum og sögðu ríkin hafa samið um að Íran opnaði Hormússund að fullu í skiptum fyrir að Bandaríkin afléttu herkví sinni við Íransstrendur. Þetta hefur valdið mikilli óvissu um siglingar um Hormússund. Skipafélög segja ástandið hafa skapað ringulreið og hættu.
Axios hefur eftir öðrum embættismanni að bæði ríki ætli að gera hlé á árásum sínum og að skip geti nú siglt óhindrað um Hormússund að nýju.