Reykjavíkurborg áætlar að eyða rúmum milljarði króna í malbikunarframkvæmdir í sumar. Hjá Vegagerðinni, sem sér um viðhald þjóðvega innan höfuðborgarsvæðisins, nemur upphæðin rúmum 600 milljónum auk 85 milljóna í viðgerðir.
Malbikunarflokkar hafa verið að störfum frá því í vor. Birgir Blöndahl Arngrímsson verkefnastjóri hjá Colas Ísland segir að vinnan hafi gengið vel.
„Það er búið að ganga gríðarlega vel í sumar. Við komumst hratt af stað. Veðrið er búið að leika við okkur síðustu viku þó það hafi komið rigning inn á milli. Við erum búnir að malbika tvo þriðju af höfuðborgarsvæðinu fyrir Vegagerðina þannig að þetta skotgengur. Við erum búnir með 80 þúsund fermetra, eða 8 þúsund tonn af malbiki og eigum svona 40 þúsund fermetra eftir,“ segir Birgir.
Hann segir götur og vegi koma misvel undan vetri. Á sumum stöðum er ástandið frekar slæmt.
„Það eru djúp hjólför og þau eru oft komin í gegnum núverandi malbikslag og ofan í það næsta sem segir sig sjálft að það er slysahætta,“ segir Birgir.
Malbikunarframkvæmdum fylgir oft mikil röskun á umferð þó að oftast sé reynt að sinna þeim utan háannatíma. Götum er lokað tímabundið og umferð beint um aðrar leiðir. Birgir segir ökumenn oftast sýna þessu skilning en þó ekki alltaf.
„Ökumenn hafa alveg komið út úr bílunum og hellt sér yfir starfsfólk okkar á lokunarpóstunum. En það er það versta. Oftast er bara tekið vel í þetta,“ segir Birgir.