Scott Wiener, öldungadeildarþingmaður í Kaliforníu og einn þekktasti talsmaður réttinda transfólks í Bandaríkjunum, var rekinn með skömm frá Trans March göngu í San Francisco á föstudag þegar hópur mótmælenda umkringdi hann og krafðist þess að hann myndi yfirgefa svæðið.
Myndband sem birt var á samfélagsmiðlum sýnir mótmælendur ganga að Wiener með hrópum og köllum og saka hann um að hafa brugðist Palestínumönnum. Einn þeirra segir meðal annars að hann hafi „hætt að vera hinsegin um leið og hann byrjaði að styðja Ísrael“ og að hann eigi ekki lengur heima í hreyfingunni.
Wiener hefur um árabil verið einn áhrifamesti stjórnmálamaður Bandaríkjanna í málefnum hinsegin fólks og sérstaklega transfólks. Hann hefur lagt fram fjölda lagafrumvarpa á því sviði og hefur lengi notið stuðnings frjálslyndra aktívista í San Francisco.
Mótmælin virðast þó hafa snúist alfarið um afstöðu hans til stríðsins á Gaza. Wiener, sem er gyðingur, studdi áður Ísrael en breytti afstöðu sinni fyrr á þessu ári og sagði í janúar að hann teldi að Ísrael hefði framið þjóðarmorð á Gaza.
Þrátt fyrir þá stefnubreytingu dugði það ekki fyrir þá mótmælendur sem töldu hann bera ábyrgð á fyrri afstöðu sinni og kröfðust þess að hann hypjaði sig á brott úr göngunni.
Sá sem birti myndbandið á samfélagsmiðlinum X skrifaði að í fyrsta sinn hefði tekist að reka Wiener úr Trans March og lýsti honum sem stjórnmálamanni sem styddi þjóðarmorð.
Scott Wiener showed up to the trans march and for the first time we kicked his ass out. It’s sad because while he’s written some good legislation for queers, hes ultimately a genocidal-supporting center right shill. Trigger warning: broken man walking away defeated. Vote Connie! pic.twitter.com/TXIB7omxde
— Dimitry Yakoushkin (@decadimitry) June 27, 2026