Ísraelski herinn hefur eyðilagt göng sem Hezbollah-samtökin höfðu grafið í Suður-Líbanon. Göngin voru eyðilögð með sprengingu.
Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Benjamíns Netanyahus forsætisráðherra og Israel Katz varnarmálaráðherra voru göngin rúmlega 200 metra löng og náðu meira en 25 metra niður í jörðina. Þar fundust að sögn þeirra hundruð vopna sem áttu að nýtast til árása á Ísrael og ísraelska borgara.
Fyrr í vikunni undirrituðu Ísrael og Líbanon þríhliða rammasamkomulag ásamt Bandaríkjunum í Washington. Samkomulaginu er ætlað að greiða fyrir friðarviðræðum milli ríkjanna.
Ísraelsk stjórnvöld segjast hafa tilkynnt Bandaríkjunum og fulltrúa þeirra í Líbanon fyrirfram um sprenginguna.
Blaðamaður AFP í borginni Týros í Líbanon sá reyk stíga upp frá svæðinu nærri þorpinu Majdal Zoun og greindi frá því að íbúar hefðu yfirgefið nærliggjandi bæi eftir fregnir um yfirvofandi sprengingu.