Íslendingur í Hollandi segir rigningu í gær hafa verið kærkomna eftir hitabylgjuna sem hefur geisað í Evrópu. Hiti hefur víða farið yfir 40 stig í fyrsta sinn.
Íbúar Evrópu halda áfram að finna fyrir hitabylgju sem færist austur um álfuna. Í Þýskalandi mældist 41,7 fjörutíu og eins komma sjö stiga hiti í dag nærri pólsku landamærunum. Hitinn gæti farið yfir 40 stig í Póllandi, Tékklandi og í Slóvakíu. Bjarni Valgeirsson er á ferðalagi í Hollandi, þar sem hitinn hefur líka mælst mikill.
„Það var bara algjör steik þannig að það er bara buið að vera suður-Spánar miðsumars veður sem að samfélagið er ekki tilbúið fyrir. Þannig að þegar að rigningin kom var þetta frekar kærkomið,“ segir Bjarni.
Samhliða hitanum hefur öflugt þrumuveður gengið yfir hluta álfunnar og valdið rafmagnsleysi og tjóni víða. Bjarni segist hafa verið feginn þegar þrumuveður skall á í gær eftir mikinn hita síðustu daga.
„Það kom svaka þrumuveður og ég hef aldrei séð annað eins af því að þetta var bara út um allan himininn og í svona fjóra eða fimm klukkutíma. Þetta var eiginlega bara algjör klikkun,“ segir Bjarni.
„Við vorum úti að hjóla þegar þetta byrjaði. Við hjóluðum í kannski 20 eða 30 mínútur og það var ekki þurr þráður. Og þetta var ýmist margra kílómetra fjarlægð eða bara beint fyrir ofan hausinn á okkur.“
Búist er við því að hiti fari lækkandi næstu daga. Bjarni segir veðrið þegar tekið að skána.
„Núna er þetta eiginlega bara geggjað. Það er 27 stiga hiti smá gola og léttskýjað. Þannig núna er þetta bara svona eins og maður vill hafa það.“