Innflutt menning – ekki bara spurning um kebab

Geir Ágústsson skrifar:
Hún er drungaleg byrjunin á hinni svokölluðu "Rape Gang Report" sem var nýlega gefin út í Bretlandi:
Nefnd um rannsókn á nauðgunargengjum rannsakaði kerfisbundna misnotkun á berskjölduðum stúlkum, að langmestu leyti hvítum breskum stúlkum, af hálfu gengja sem voru aðallega skipuð múslimum af pakistönskum uppruna í bæjum og borgum víðs vegar um Bretland. Gögnin sem lögð voru fyrir rannsóknina staðfesta að þetta hneykslismál telst til einna skelfilegustu kerfisbundnu mistaka í sögu landsins. Skipulögð net gerenda byggðu upp samhæfðar aðgerðir þar sem fórnarlömb voru flutt milli staða, þeim útvegað fíkniefni og áfengi, misnotkunin tekin upp til dreifingar og fjárkúgunar, og stúlkurnar látnar ganga á milli margra fullorðinna karla. Þessir glæpir hafa verið framdir í áratugi, allt frá sjötta áratug 20. aldar, sérstaklega af Pakistönum, og hafa haft áhrif á hvert einasta svæði landsins.
Furðulega lítið er rætt um þessa skýrslu og yfirleitt er slíkri umfjöllun ætlað að gera lítið úr sannleiksgildi hennar. Höfundur er jú hægrimaður!
Furðulegt því tilvist pakistanskra nauðgunargengja í Bretlandi hefur lengi verið á allra vitorði og meira að segja ratað inn á breska þingið. Menn geta rifist um það hvort fórnarlömbin telji í hundruð þúsunda eða bara tugum þúsunda en vandamálið er til staðar, það vita það allir og ekkert er gert. Lögreglan er tvímælalaust ekki tilbúin að rannsaka sjálfa sig og komast að því að hún leyfði hópnauðgunum á ungum stúlkum að eiga sér stað, kerfisbundið og yfir fjölda ára, og þingið hikar við að opna stóra rannsókn sem gera almenning brjálaðan yfir hneykslinu og þöggunartilraununum.
En gott og vel, við höfum fyrir löngu lært að treysta hvorki stjórnmálamönnum né blaðamönnum til að taka á vandamálum þar sem hætta er á að einhver verði kallaður rasisti.
Og það kæmi mér af þeirri ástæðu ekkert á óvart ef Íslendingar komist að því, dag einn, að þeir eru líka búnir að flytja inn stóra hópa af nauðgurum sem fá að ganga um lausir og nauðga fyrir framan nefið á lögreglunni.
Kvenfyrirlitning, eða almennt það viðhorf að telja konur vera minna virði en karlmenn og jafnvel einskis virði, er útbreidd hugsun í mörgum heimshlutum og jafnvel skrifuð inn í trúartexta. Menn ættu að fara mjög varlega í að flytja inn slík viðhorf, hvað þá í miklu magni, og læra af reynslunni og jafnvel snúa við slíkri þróun.
Því þeir sem styðja innflutning á nauðgunarmenningu eru um leið að styðja við fjölgun á nauðgunum, hvort sem þeir gera sér grein fyrir því eða ekki.
Það getur vel verið að mönnum langi í kebab. Og auðvitað er hægt að eiga kebab-stað og styðja jafnrétti kynjanna. En stígum varlega til jarðar áður en allir matsölustaðir verða kebab-staðir.