Skip Paul Watson sjóðsins sem komið er inn í efnahagslögsöguna í því skyni að stöðva hvalveiðar hefur ekki tilkynnt um staðsetningu skipsins eins og því ber að gera. Áhöfnin varð ekki við kröfu Landhelgisgæslunnar þess efnis í gær.
Eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, flaug að skipinu Bandero innan 200 mílna efnahagslögsögunnar í gær og var áhöfnin beðin um að kveikja á staðsetningarbúnaði skipsins. Hann var sagður bilaður.
Áhöfnin var þá látin vita að samkvæmt reglugerð um Vaktstöð siglinga væri skylt að gefa upp staðsetningu skipsins á klukkutímafresti. Samkvæmt upplýsingum frá Gæslunni hefur ekki verið orðið við því.
Tilgangurinn með því að láta vita reglulega um staðsetningu er að tryggja skjót viðbrögð við eftirgrennslan, leit og björgun lendi skip í sjávarháska. Afar sjaldgæft mun vera að áhafnir skipa hunsi reglurnar. Landhelgisgæslunni ber skylda til að annast eftirlit og löggæslu og stjórna björgun sjófarenda ef svo ber undir.
Ekki er vitað hvernig áhöfn Paul Watsons-sjóðsins ætlar að koma í veg fyrir að fleiri hvalir verða veiddir en hún og Paul Watson beina iðulega orðum sínum að Kristjáni Loftssyni forstjóra Hvals hf. Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands sagði í kvölfréttum í gær að ekkert hefði komið Kristján Loftssyni betur en þau verk sem Paul Watson hafi unnið hér.
Starfsmenn Paul Watsons-sjóðsins og Paul Watson sjálfur hafa verið iðnir að pósta á Facebook síður í dag upplýsingum og greinum um markmið og yfirstandandi leiðangur sem nefnist aðgerð 86 með vísun í 1986 þegar Paul Watson sem þá var í samtökunum Sea Sheapard og félagar hans sökktu tveimur hvalveiðiskipum Hvals hf. í Reykjavíkurhöfn. Paul Watson hefur hlotið mikil viðbrögð við færslum sínum á Facebook síðu sinni í morgun. Nær öll viðbrögð eru jákvæð. Nokkrir með íslensk nöfn sem hafa svarað virðast andsnúnir athæfinu.
Nú fyrir hádegi svarar Paul Watson á síðunni á íslensku og segir Takk fyrir ógnirnar, móðganirnar og skoplega skoðanir. Með færslunni fylgir samsett mynd af bátnum Bandero, hvölum í fjarska og svo af hópi skeggjaðra karla með íslenskan fána sem steyta hnefana gegn áhöfn Banderós.