„Í mínum huga var þessi dagur full­kominn“ - Vísir

„Í mínum huga var þessi dagur full­kominn“ - Vísir

„Í mínum huga var þessi dagur full­kominn“ - Vísir

Hjónin hafa verið par í rúmlega átta ár og voru heldur róleg í skipulagi á veislunni. Blaðamaður ræddi við Marín um stóra daginn.

Nýgift og hamingjusöm hjón.Íris Dögg

Hvenær og hvernig trúlofuðust þið?

Hannes bað mín síðasta sumar þegar við vorum í Kaupmannahöfn. Það var mjög óvænt og fallegt, sérstaklega þar sem bónorðið var borið upp í borginni minni þar sem ég bjó í ellefu ár.

Hvað voruð þið búin að vera lengi að skipuleggja stóra daginn?

Við vorum ef til vill aðeins of róleg í upphafi, enda gerðum við okkur ekki grein fyrir því hversu langt fram í tímann fólk pantar veislusali, jafnvel allt að tveimur árum áður. 

Við skoðuðum meðal annars þann möguleika að halda brúðkaup erlendis með allra nánustu, en þar sem við eigum bæði stórar fjölskyldur varð fljótt ljóst að það hentaði okkur ekki. Okkur langaði að geta boðið sem flestum og ákváðum því að lokum að gifta okkur hér heima.

Hjónin völdu Háteigskirkju og Parliament hótelið fyrir stóra daginn.Íris Dögg

Hvernig var brúðkaupsdagurinn?

Hann var eins og draumur og fór langt fram úr öllum mínum væntingum. Í mínum huga var þessi dagur fullkominn og það er ekki aðeins vegna þess að ég var að giftast ástinni minni. Það er fyrst og fremst öllu því frábæra fólki að þakka sem lagði sitt af mörkum til að gera daginn svona einstakan og ógleymanlegan.

Ég hóf daginn í Makeup-Studio Hörpu Kára ásamt mínum nánustu konum; dætrum mínum, systur, mágkonu, mömmu, tengdamömmu og bestu vinkonum. Harpa Kára vinkona mín sá um förðunina mína af mikilli fagmennsku og Katrín töfraði fram fallega hárgreiðslu. Sigrún Sig og Sara Eiríks sáu um hár og förðun hinna damanna, á meðan vinkona mín Sæunn og Alba Mist dekruðu við yngstu dóttur okkar. 

Á sama tíma naut Hannes góðra stunda með strákunum okkar á Parliament hótelinu. Synir okkar gegndu mikilvægu hlutverki sem svaramenn við athöfnina, þar sem feður okkar beggja eru fallnir frá, og dætur okkar voru yndislegir hringaberar. Þetta gerði daginn enn persónulegri og hjartnæmri fyrir okkur öll.

Hvar hélduð þið brúðkaup? 

Séra Guðrún Karls Helgudóttur biskup gifti okkur í Háteigskirkju og vorum við bæði á því að sú kirkja yrði fyrir valinu. Sú kirkja ber sögu í okkar fjölskyldu. Fordrykkinn héldum við á Parliament hótelinu og veislan var í Sjálfstæðissalnum á Parliament hótelinu. Salurinn bauð upp á allt sem við vorum að leitast eftir.

Ástin var svo sannarlega í loftinu.Aðsend

Voruð þið sammála í skipulaginu?

Við vorum mjög sammála. Ég skipulagði og hann sagði já við flestu.

Marín Manda skipulagði og Hannes sagði já við flestu.Íris Dögg

Hvað fannst ykkur mikilvægast?

Okkur fannst mikilvægt að hafa þennan dag algjörlega eftir okkar höfði. Fólk var einnig duglegt að koma með hugmyndir sem ég kann virkilega að meta. En allra mikilvægast var að börnin okkar tækju sem mestan þátt í deginum með okkur.

Börnin tóku mikinn þátt í stóra deginum.Aðsend

Hvaðan sóttuð þið innblástur?

Um leið og ég fór að skoða Pinterest þá sá algorytminn um að leiða mig áfram í hugmyndavinnu. Ég vildi hafa allt mjög stílhreint og svart og hvítt litaþema. Pínulítið í „Old Hollywood“ stíl. Fyrir utan brúðarbílinn sem var bleikur og hvítur og er frá í kringum 1950.

Brúðkaupið var svolítið í gömlum Hollywood stíl.Íris Dögg

Hvað stendur upp úr?

Augnablikið þegar við sáum hvort annað þegar ég labbaði inn kirkjugólfið er einhvern veginn ólýsanleg tilfinning og þar er óhætt að segja að það hafi lekið nokkur gleðitár hjá okkur báðum við það augnablik. Veðrið lék svo við okkur um daginn og þegar við mættum í veisluna voru gestirnir búnir að raða sér upp þannig að við gengum í gegnum allan hópinn undir saxafónleik.

Veislan sjálf var dásamleg þar sem margir héldu ræður og þar á meðal öll börnin okkar sem bræddu hjörtu okkar með svo fallegum orðum. Síðar um kvöldið var slegið upp partýi þar sem frábært tónlistarfólk sá um að gera stemminguna ógleymanlega það sem eftir lifði kvöldsins.

Dagurinn var sannkallaður draumur.Íris Dögg

Sáu einhverjir um veislustjórn og voru skemmtiatriði?

Það fylgir því mikil vinna og skipulag að halda stórt brúðkaup og ég er óendanlega þakklát öllu því fólki sem studdi okkur á leiðinni, veitti okkur pepp, sýndi skilning og réttu fram hjálparhönd þegar á þurfti að halda. Við völdum veislustjórana úr vinahóp okkar og voru þeir með allt fullkomlega á hreinu og stýrðu deginum af fagmennsku og glæsibrag frá upphafi til enda. Ég veit ekki hvernig við hefðum gert þetta án þeirra.

Skreytingaþjónustan sá um allar skreytingar og blómaskreytingar og breytti salnum í nákvæmlega þá draumsýn sem við höfðum séð fyrir okkur. Starfsfólkið á Parliament hugsaði einstaklega vel um okkur og gestina alla, tæknimaðurinn á hrós skilið fyrir sitt framlag og svo voru það ræðurnar, skemmtiatriðin og fólkið okkar sem gerðu daginn ógleymanlegan. Það er eiginlega spurning hversu langan tíma það tekur að lenda aftur á jörðinni eftir svona upplifun. 

Eitt er þó víst, brúðkaup eru einfaldlega lang bestu veislurnar.
Brúðkaup eru bestu partýin segir Marín Manda.Íris Dögg

Var eitthvað sem kom ykkur á óvart?

Aðallega hversu hratt dagurinn leið.

Hvað voru margir gestir?

Það voru rúmlega 150 manns í veislunni svo salurinn var fullur af okkar nánasta fólki. Við hefðum viljað bjóða fleirum en það er alltaf erfitt að draga línuna þegar við erum með svona fjölmennt brúðkaup.

Hvernig gekk að velja brúðkaupsfötin og hvaðan sóttirðu innblásturinn fyrir það?

Ég og dóttir mín, Alba Mist, fórum saman í verslunina Loforð að skoða brúðarkjóla. Um leið og hún kom auga á þennan kjól benti hún á hann og sagði: „Mamma, þetta er kjóllinn.“ Þetta var fyrsti kjóllinn sem ég mátaði og hann passaði fullkomlega. Um leið og ég fór í hann gat ég ekki hætt að brosa.

Kjóllinn var allt annar en sá sem ég hafði ímyndað mér fyrirfram, en þegar ég sá mig í honum vissi ég að enginn annar kæmi til greina. Alba Mist valdi kjólinn og með örlitlum breytingum frá þeim hjá Loforð varð hann nákvæmlega sá draumakjóll sem ég hafði ekki einu sinni vitað að ég væri að leita að. Hannes átti sjálfur smoking en leigði svo hvítan jakka hjá Loforð aukalega.

Marín fann draumakjólinn í Loforði.Íris Dögg

Ertu með eitthvað gullið ráð fyrir verðandi hjón sem eru að skipuleggja brúðkaup?

Munið að njóta allra augnablikanna því dagurinn líður einfaldlega of hratt.

Brúðkaupsdagurinn flýgur hjá og því mikilvægt að vera í algjöru nú-i.Íris Dögg

Ætlið þið í brúðkaupsferð?

Já við munum fara í brúðkaupsferð en fyrst langar okkur að fagna fimmtíu ára afmæli Hannesar með börnunum okkar svo það er afmælisferð á næsta leiti.

#dagur #huga #mínum #var #þessi


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262901359d/-i-minum-huga-var-thessi-dagur-full-kominn-

📰 Aðrar fréttir

Dregur úr vindi og úrkomu síðar í dag
📅 28.06.2026 👁️ 0
Dregur úr vindi og úrkomu síðar í dag
Von er á talsverðri bleytu og hvassviðri víða um land framan af degi. Á morgun snýst í suðvestanátt og áfram er útlit fyrir vætu. Víkjum að hugleiðing...
Tala látinna hækkar og gremja í­búa eykst - Vísir
📅 28.06.2026 👁️ 0
Tala látinna hækkar og gremja í­búa eykst - Vísir
Í umfjöllun BBC segir að hundruð bygginga hafi hrunið og undir rústunum séu þúsundir Venesúelabúa enn. Tala látinna og slasaðra hækkar með hverri kluk...
Tveggja ára stúlka fannst látin á Englandi – Maður frá Afríku ákærður fyrir morð og nauðgun
📅 28.06.2026 👁️ 0
Tveggja ára stúlka fannst látin á Englandi – Maður frá Afríku ákærður fyrir morð og nauðgun
Tveggja ára stúlka fannst látin á heimili í bænum Chertsey í Surrey á Englandi á fimmtudag. Franskur ríkisborgari, fræddur í Mið-Afríkulýðveldinu, hef...
Réðst að hópi drengja í sund­laug - Vísir
📅 28.06.2026 👁️ 0
Réðst að hópi drengja í sund­laug - Vísir
Rennibrautir eru í bæði Laugardalslaug og Seltjarnarneslaug í umdæmi stöðvar 1 sem sinnti atvikinu . Fimm voru vistaðir í fangageymslu lögreglunnar á ...
Mats­gerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir á­hrifum slævandi lyfja - Vísir
📅 28.06.2026 👁️ 0
Mats­gerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir á­hrifum slævandi lyfja - Vísir
Í dómi Landsréttar má sjá að dómurinn hafi talið að matsgerðir Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði hjá Háskóla Íslands, sem lágu til grundvalla...
Væta með stífri norð­austan­átt - Vísir
📅 28.06.2026 👁️ 0
Væta með stífri norð­austan­átt - Vísir
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að lægðirnar þaulsetnu sem stjórna veðrinu um þessar mundir færi vætu um allt land í dag með stífri norðaustanátt á...
Dragdrottningin sem leitaði skjóls á Íslandi: „Ég hélt að þetta væru endalokin“
📅 28.06.2026 👁️ 0
Dragdrottningin sem leitaði skjóls á Íslandi: „Ég hélt að þetta væru endalokin“
Dragdrottningin sem leitaði skjóls á Íslandi: „Ég hélt að þetta væru endalokin“ „Þú læt­ur fólk aldrei sjá þig í dragi fyr­ir ut­an klúbb­ana,“ seg­ir...
Sundlaugar áfram opnar til 22 um helgar í haust
📅 28.06.2026 👁️ 1
Sundlaugar áfram opnar til 22 um helgar í haust
Íþrótta- og útilífsráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að lengja opnunartíma sundlauga borgarinnar til klukkan 22 á kvöldin allar helgar frá og með 1...
World Cup 2026: Iran unlucky losers after missing out on last 32
📅 28.06.2026 👁️ 0
World Cup 2026: Iran unlucky losers after missing out on last 32
Iran had a place in the last 32 of the World Cup snatched away from them at the last minute not once but twice.
World Cup 2026: Reasons to watch every tie in the last 32
📅 28.06.2026 👁️ 0
World Cup 2026: Reasons to watch every tie in the last 32
BBC Sport shows why you should be interested in all of the World Cup's last-32 ties.
Réðst að hópi drengja í sundlaug
📅 28.06.2026 👁️ 0
Réðst að hópi drengja í sundlaug
Maður réðst að hópi drengja í sundlaug á höfuðborgarsvæðinu í gær. Drengirnir höfðu rennt sér á eftir manninum í rennibraut og lentu á manninum og ung...
Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api - Vísir
📅 28.06.2026 👁️ 1
Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Sem fyrr er einungis montrétturinn í verðlaun. (Og að sjálfsögðu er ...
England fans react to 2-0 Panama victory at the World Cup
📅 28.06.2026 👁️ 1
England fans react to 2-0 Panama victory at the World Cup
Fans in New Jersey and back at home cheered on as England won against Panama to finish top of Group L.
Mesta atvinnuleysi síðan 1998
📅 28.06.2026 👁️ 1
Mesta atvinnuleysi síðan 1998
Alls voru 376 þúsund manns atvinnulausir í Finnlandi í maí. Þetta er 20% aukning frá sama mánuði á síðasta ári.Finnska ríkisútvarpið greinir frá þessu...
Harry reconsidering taking Meghan and children on UK trip
📅 28.06.2026 👁️ 1
Harry reconsidering taking Meghan and children on UK trip
It comes after his request for police protection was rejected days before the family is due to arrive.
Íranar gera árásir á Kúveit og Bahrein
📅 28.06.2026 👁️ 1
Íranar gera árásir á Kúveit og Bahrein
Árásir hafa staðið yfir á Kúveit og Bahrein í nótt. Loftvarnarflautur fóru í gang í Barhein og íbúar voru hvattir til að fara í öruggt skjól og halda ...
Bad Bunny lights up London with history-making stadium show
📅 28.06.2026 👁️ 1
Bad Bunny lights up London with history-making stadium show
Pride and a party as the Puerto Rican becomes the first Latin artist to headline a UK stadium.
Newspaper headlines: 'Devolution revolution' and 'The cost of cool'
📅 28.06.2026 👁️ 1
Newspaper headlines: 'Devolution revolution' and 'The cost of cool'
Andy Burnham's economic policy speech next week and the record heatwave dominate Sunday's papers.
World Cup 2026: England will not win World Cup if they do not improve, writes Phil McNulty
📅 28.06.2026 👁️ 1
World Cup 2026: England will not win World Cup if they do not improve, writes Phil McNulty
England did their job topping the group - but they can forget winning the World Cup if they do not improve, writes Phil McNulty.
Sort Your Life Out: How to fix four common cluttering mistakes
📅 28.06.2026 👁️ 1
Sort Your Life Out: How to fix four common cluttering mistakes
Tidying expert Dilly Carter shares her best tips on organising your kitchen, lounge and clothes.
How addicted are we to our phones? Some of us are going to rehab
📅 28.06.2026 👁️ 1
How addicted are we to our phones? Some of us are going to rehab
Addiction treatment centres say more clients are coming for help with "out-of-control" phone use.
117 dead dogs found at 'no-kill' animal rescue - many with gunshot wounds
📅 28.06.2026 👁️ 1
117 dead dogs found at 'no-kill' animal rescue - many with gunshot wounds
Hundreds more animals are still missing from the California facility as investigators continue excavating the grounds.
Lib Dems face call for inquiry into deselection of election candidate
📅 27.06.2026 👁️ 1
Lib Dems face call for inquiry into deselection of election candidate
The party has admitted it unlawfully discriminated against David Campanale because of his religious beliefs.
Scotland: Steve Clarke resigns after World Cup exit
📅 27.06.2026 👁️ 1
Scotland: Steve Clarke resigns after World Cup exit
Steve Clarke resigns as Scotland head coach following the nation's group exit from the World Cup.
Sau­tján ára Ís­lendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Dan­mörku - Vísir
📅 27.06.2026 👁️ 1
Sau­tján ára Ís­lendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Dan­mörku - Vísir
Íslendingurinn var ákærður fyrir að hafa unnið skemmdarverk á lögreglubíl, sparkað í höfuð lögreglumanns þannig að hann hlaut heilahristing og hótað l...
Bandero ekki með kveikt á staðsetningarbúnaði
📅 27.06.2026 👁️ 1
Bandero ekki með kveikt á staðsetningarbúnaði
Bandero, skip hvalverndarsinnans Paul Watson, var ekki með kveikt á staðsetningarbúnaði skipsins þegar það sigldi inn í íslenska efnahagslögsögu á níu...
Tom English: Scotland's ill-fated World Cup story finally at a sorry end
📅 27.06.2026 👁️ 1
Tom English: Scotland's ill-fated World Cup story finally at a sorry end
BBC Sport Scotland's chief sportswriter Tom English sums up his verdict on the nation's World Cup exit.
Why North Korean leader Kim Jong Un never talks about his mother,  Ko Yong Hui
📅 27.06.2026 👁️ 1
Why North Korean leader Kim Jong Un never talks about his mother, Ko Yong Hui
Very few North Koreans know about her, as her origin could threaten the regime’s legitimacy.
US conducts retaliatory strikes on Iran after second shipping attack
📅 27.06.2026 👁️ 1
US conducts retaliatory strikes on Iran after second shipping attack
The US said it had hit multiple targets "in direct response to continued Iranian aggression against commercial shipping".
US and Iran exchange strikes and accuse each other of violating ceasefire
📅 27.06.2026 👁️ 1
US and Iran exchange strikes and accuse each other of violating ceasefire
Iran says it has launched retaliatory attacks at US infrastructure in Kuwait and Bahrain after the US said it hit multiple targets across Iran.
Hnífstunguárás á Riddaranum
📅 27.06.2026 👁️ 1
Hnífstunguárás á Riddaranum
Maður var stunginn með hnífi á Ölstofunni Riddarinn við Engihjalla 8 í kvöld (laugardagskvöld). Þetta herma heimildir DV. Starfsstúlka á barnum virkja...
Göngukona slasaðist við Hólmavatn
📅 27.06.2026 👁️ 1
Göngukona slasaðist við Hólmavatn
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á áttunda tímanum í kvöld vegna konu sem hafði verið á göngu og slasast við Hólmavatn suðaustur af Sauðár...
Bandaríkja­her heldur á­rásum á­fram í Íran - Vísir
📅 27.06.2026 👁️ 1
Bandaríkja­her heldur á­rásum á­fram í Íran - Vísir
Miðstjórn Bandaríkjahers, CENTCOM, greinir frá þessu á samfélagsmiðlum. Árásirnar í dag eru sagðar svar við árás Íranshers á olíuflutningaskip, sem si...
Australia to double penalties for platforms in breach of social media ban
📅 27.06.2026 👁️ 1
Australia to double penalties for platforms in breach of social media ban
Children under the age of 16 have been prevented from 10 key social media platforms in Australia since December 2025.
Skip Watsons komið inn fyrir 200 sjómílna mörk
📅 27.06.2026 👁️ 1
Skip Watsons komið inn fyrir 200 sjómílna mörk
Bandero, skip hvalverndarsinnans Paul Watson, er komið inn fyrir 200 sjómílna mörk íslensku efnahagslögsögunnar.„Áhöfn Bandero er nú innan 200 mílna m...
Skip Wat­sons komið inn í ís­lenska efna­hags­lögsögu - Vísir
📅 27.06.2026 👁️ 1
Skip Wat­sons komið inn í ís­lenska efna­hags­lögsögu - Vísir
Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í samtali við Vísi í kvöld. Hann segir að flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-...
Slösuð göngu­kona flutt með þyrlunni - Vísir
📅 27.06.2026 👁️ 1
Slösuð göngu­kona flutt með þyrlunni - Vísir
Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir að lögreglan á Norðurlandi vestra hafi óskað eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar vegna m...
Risa dróni ber áburð á golfvöllinn í Þorlákshöfn
📅 27.06.2026 👁️ 1
Risa dróni ber áburð á golfvöllinn í Þorlákshöfn
Stór og mikill dróni gegnir nú því hlutverki á golfvellinum í Þorlákshöfn að bera áburð á völlinn, ýmist í kornaformi eða fljótandi formi.Dróninn er e...
Paul Watson kominn inn í íslenska lögsögu – stjórnvöld þögul um boðaðar aðgerðir gegn hvalveiðum
📅 27.06.2026 👁️ 1
Paul Watson kominn inn í íslenska lögsögu – stjórnvöld þögul um boðaðar aðgerðir gegn hvalveiðum
Paul Watson, stofnandi Sea Shepherd Conservation Society og einn umdeildasti náttúruverndarsinni samtímans, er nú kominn inn fyrir 200 mílna lögsögu Í...
„Málið er í öllu til­liti afar ó­heppi­legt“ - Vísir
📅 27.06.2026 👁️ 1
„Málið er í öllu til­liti afar ó­heppi­legt“ - Vísir
Benedikt fjallar um þetta í grein í nýjasta tölublaði Lögmannablaðsins. Þar segir hann að til þess að þessar stoðir réttarríkisins geti starfað og þjó...
Sam­bandi Cox og McDaid lokið - Vísir
📅 27.06.2026 👁️ 1
Sam­bandi Cox og McDaid lokið - Vísir
Hin 62 ára Cox er þekktust fyrir að hafa farið með hlutverk Monicu í einum vinsælustu sjónvarpsþáttum sögunnar, Friends, eða Vinum. Hinn 49 ára Johnny...
Forseti Serbíu hyggst segja af sér innan nokkurra vikna
📅 27.06.2026 👁️ 1
Forseti Serbíu hyggst segja af sér innan nokkurra vikna
Aleksandar Vučić, forseti Serbíu, hefur sagst ætla að segja af sér innan nokkurra vikna.Þessu greindi hann frá þegar hann ávarpaði stuðningsmenn sína ...
Tíu ár síðan Ísland hristi fótboltaheiminn – lagði England 2-1 í einum stærsta sigri Íslandssögunnar
📅 27.06.2026 👁️ 1
Tíu ár síðan Ísland hristi fótboltaheiminn – lagði England 2-1 í einum stærsta sigri Íslandssögunnar
Í dag eru liðin nákvæmlega tíu ár frá einum eftirminnilegasta degi í íslenskri íþróttasögu. Þann 27. júní 2016 vann Ísland ótrúlegan 2-1 sigur á Engla...
Festa lengri opnunar­tíma lauganna um helgar í sessi - Vísir
📅 27.06.2026 👁️ 1
Festa lengri opnunar­tíma lauganna um helgar í sessi - Vísir
Borgarstjórn samþykkti í apríl tillögu þess efnis að lengja opnunartímann til klukkan 22 um helgar út ágústmánuð en með samþykktinni nú er verið að fe...
Ógeðfellt að kenna leiðangur við skemmdarverk
📅 27.06.2026 👁️ 1
Ógeðfellt að kenna leiðangur við skemmdarverk
Leiðangur samtaka Pauls Watsons gerir hvalverndunarsinnum ógagn, segir Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands. Hann segir ekkert hafa k...
Ó­gleyman­legt kvöld í alla staði - Vísir
📅 27.06.2026 👁️ 1
Ó­gleyman­legt kvöld í alla staði - Vísir
Blaðamaður ræddi við Aaron um þetta kvöld en markmið hans var að skapa lúxusheim fyrir gesti sína. Veislan var haldin í Santé Reykjavík í Skeifunni og...
Undir­búningur vegna al­myrkvans víða á loka­metrunum - Vísir
📅 27.06.2026 👁️ 1
Undir­búningur vegna al­myrkvans víða á loka­metrunum - Vísir
Þetta kemur fram í minnisblaði stýrihóps Stjórnarráðsins um samhæfingu undirbúnings vegna almyrkvans en minnisblaðið var lagt fram á fundi ríkisstjórn...
For­seti Serbíu hyggst segja af sér - Vísir
📅 27.06.2026 👁️ 1
For­seti Serbíu hyggst segja af sér - Vísir
Vucic greindi frá þessu þegar hann ávarpaði stuðningsmenn sína í höfuðborginni Belgrad fyrr í dag. „Ég mun vera forseti í nokkrar vikur í viðbót og sv...
'Every person saved is a miracle': Families call to trapped loved ones in region devastated by Venezuela quakes
📅 27.06.2026 👁️ 1
'Every person saved is a miracle': Families call to trapped loved ones in region devastated by Venezuela quakes
Families keep vigil at buildings where they fear their loved ones are trapped, but face an impossible task to move heavy debris.
La Guaira: Families calling out to loved ones trapped in rubble by Venezuela quakes
📅 27.06.2026 👁️ 0
La Guaira: Families calling out to loved ones trapped in rubble by Venezuela quakes
In La Guaira, desperate families keep vigil at buildings where they fear their relatives are trapped, but face an impossible task to move heavy debris...