Rennibrautir eru í bæði Laugardalslaug og Seltjarnarneslaug í umdæmi stöðvar 1 sem sinnti atvikinu .
Fimm voru vistaðir í fangageymslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir nóttina. Fram kemur í dagbók að 76 mál hafi verið skráð í kerfið frá klukkan 17 í gær til klukkan fimm í nótt.
Tvær líkamsárásir
Í dagbók kemur einnig fram að lögreglu hafi verið tilkynnt um ungmenni að brjótast inn í skóla en ekki er tekið fram hvar. Þá var einn handtekinn vegna líkamsárásar á bar og vistaður í fangageymslu.
Einn ökumaður var kærður fyrir að aka á 121 kílómetra hraða á klukkustund þar sem hámarkshraði er 90. Atvikið átti sér stað í umdæmi stöðvar 2 sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði og Garðabæ. Þá var einnig til stöðvar 2 tilkynnt um slagsmál í heimahúsi.
Þá var einnig tilkynnt um leigubíla við hátíðina Hjarta Hafnarfjarðar sem tepptu umferð og um alvarlega líkamsárás á sportbar í Kópavogi eða Breiðholti. Einn var handtekinn og vistaður í fangageymslu.
Lögregla sinnti auk þess fjölda verkefna vegna ökumanna sem grunaðir voru um akstur undir áhrifum vímuefna og vegna hávaða í heimahúsi eða vegna tónlistar.