Miðstjórn Bandaríkjahers, CENTCOM, greinir frá þessu á samfélagsmiðlum. Árásirnar í dag eru sagðar svar við árás Íranshers á olíuflutningaskip, sem siglir undir panamskum fána, og staðsett var nærri Hormússundi.
„Árásir CENTCOM-sveita eru beint svar við áframhaldandi árásum Írana á ferðir flutningaskipa,“ segir í yfirlýsingunni. Þá segir að bandarískar herflugvélar hafi ráðist á eftirlitsinnviði íranska hersins, fjarskiptakerfi, loftvarnamannvirki, geymslur fyrir dróna og hafsprengjur.
— U.S. Central Command (@CENTCOM) June 27, 2026
Árásir Bandaríkjahers koma í kjölfar árása Bandaríkjahers í gær sem einnig voru sagðar svar við árásum Íranshers á flutningaskip. Í yfirlýsingu frá utanríkisráðuneyti Írans sagði að árásir Bandaríkjanna væru skýrt brot á samkomulagi Bandaríkjanna og Írans.
Írönsk stjórnvöld hafa enn ekki brugðist við þessum nýjustu árásum Bandaríkjahers.
Íranskir fjölmiðlar greina frá því að sprengingar hafi heyrst nærri borginni Sirik við Hormússund.